by saemi » Wed 05. Apr 2006 23:12
Ég verð að taka heils hugar undir með Bjahja varðandi þetta bull sem sumir láta hér inn, fannst þetta MJÖG gott framtak og bara virðingarvert að nenna að eyða smá tíma í að sýna fram á hvaða bull kemur út úr sumum stundum.
Það má vera að öðrum finnist það bara gera þetta allt skemmtilegra, að hafa svona fullt af bulli með, en mér finnst það ekki. Mér leiðist bull og vitleysa. Finnst húmor og stríðni í góðu lagi, ásamt mátulega miklu af "off-topic" innskotum. En þegar þetta er komið út í algjöra steypu þá er þetta bara að skemma spjallið.
Segi það sama, hvernig væri að slappa af í bullinu, skrifa frekar ekkert en að skrifa um ekkert.
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,