ta wrote:Þórir wrote:Sælir.
Ég fór á ebay í fyrradag og bauð í svona angel-eyes hringi, CCFL, fyrir E-39 bílinn minn og fékk þá á 36$ plús sendingarkostnað, heildarkostnað upp á 60$.
Ég var mikið að spá í að kaupa mér svona projector ljós á ebay, þar sem ég er að fara til USA í vor, en ákvað samt að taka svona græju þar sem það virðist nú enginn rosakostnaður við að reyna þetta. Kannski eru þetta mistök, ég veit það hreinlega ekki, en fyrir einhvern 5000 kall heimkomið fannst mér þetta þess virði að reyna.
Hafiði séð svona aftermarket hringi live?
Ég fæ þetta líklega einhvertímann snemma á næsta ári og þá mun ég fara að græja þetta saman og pósta þá eflaust myndum af því hvernig þetta kemur út. Á auglýsingamyndunum kemur þetta allavegna ekki illa út.
Ég læt ykkur vita hvernig þetta kemur út, ef þetta verður ljót þá ríf ég þetta bara úr og kaupi alvöru í USA þegar ég fer þangað.
er þetta komið í?


ta wrote:flott, en 'eg vil sjá þetta með berum augum.
nýtur sín væntanlega best þegar er aðeins farið að rökkva.
Geirinn wrote:Þetta þykir mér bara nokkuð snyrtilegt og mjög svo framar vonum.
Verður kjánalegt samt ef að límið úr límbyssunni fer að rifna af... en maður vonar það bestaÞetta lím virkar oft mjög vel... en getur strítt manni líka.
Væri gaman ef þú værir með glær stefnuljós... en þú hefur væntanlega skoðun á því sjálfur
Hlakka til að sjá framhaldið.

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests