Angel eyes

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Aron Andrew » Tue 21. Feb 2006 22:41

E30 verður svona :shock: með Angel eyes :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Angel eyes.

Postby Þórir » Tue 21. Feb 2006 23:49

ta wrote:
Þórir wrote:Sælir.

Ég fór á ebay í fyrradag og bauð í svona angel-eyes hringi, CCFL, fyrir E-39 bílinn minn og fékk þá á 36$ plús sendingarkostnað, heildarkostnað upp á 60$.

Ég var mikið að spá í að kaupa mér svona projector ljós á ebay, þar sem ég er að fara til USA í vor, en ákvað samt að taka svona græju þar sem það virðist nú enginn rosakostnaður við að reyna þetta. Kannski eru þetta mistök, ég veit það hreinlega ekki, en fyrir einhvern 5000 kall heimkomið fannst mér þetta þess virði að reyna.

Hafiði séð svona aftermarket hringi live?

Ég fæ þetta líklega einhvertímann snemma á næsta ári og þá mun ég fara að græja þetta saman og pósta þá eflaust myndum af því hvernig þetta kemur út. Á auglýsingamyndunum kemur þetta allavegna ekki illa út.

Image

Ég læt ykkur vita hvernig þetta kemur út, ef þetta verður ljót þá ríf ég þetta bara úr og kaupi alvöru í USA þegar ég fer þangað.



er þetta komið í?


Sælir.

Neip, lenti í einhverju rugli og þetta er ekki komið til landsins, hafði einmitt samband við seljandann áðann. I´ll keep you posted, kannski er þetta bara drasl. :drunk:
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Sælir.

Postby Þórir » Wed 15. Mar 2006 22:05

Jæja, nú er þetta komið til landsins. Þannig var nefnilega að ég keypti kittið milli jóla og nýárs en síðan kom sendingin aldrei. Þegar ég fór síðan að ræða við seljandann kom í ljós að hann var einnig með HID kit (Xenon kit) til sölu og úr varð að ég keypti einnig af honum HID, og fékk það á mjög góðu verði. Allur pakkinn kom síðan á mánudaginn með pósti.

Image

Image

Image

Fyrst þegar ég sá þetta var ég mjög skeptískur(og er það enn) enda ekki um dýrt júnit að ræða, en ég hugsaði að það væri alveg þess virði að taka áhættuna.

Það fyrsta sem ég gerði var að taka framljósið úr, komplett, sem reyndist ekki mikið verk. Ljósið er fest með fjórum skrúfum, tvær að ofan og tvær að neðan, síðan þarf að losa plöggin sem halda aðalljósum, háljósum, stöðuljósum og stefnuljósum. Þegar þetta er komið kemur ljósið úr.

Þegar ljósið er komið úr þarf að brúka breitt skrúfjárn til þess að losa um spennurnar sem halda ljósinu saman, annars vegar: ytra gleri, linsum og stefnuljósi, en hins veg speglunum og botninum sem perurnar eru festar í. Lýsingu og myndir er að finna á: Image

Þegar þetta er síðan komið í sundur kemur að því að koma hringjunum fyrir í linsunum. Ég leysti þetta með því að tylla hringjunum í en festa þá síðan með límbyssu. Þetta taldi ég vera bæði hreinlegast, auðveldast að fjarlægja, ef illa færi, og einnig nægilega hitaþolið.

Hringirnir eru úr gleri og þess vegna verður að fara mjög varlega með þá. Þeir eru síðan tengdir í einhverskonar startara, sem síðan eru tengdir beint í stöðuljósa tengið. Við tókum þá ákvörðun að geyma startarana í ljós-húsinu sjálfu, enda líklega öruggastir þar, þeir voru festir með límbyssunni góðu.

Image

Image

Nú síðan var bara að klastra öllu dæminu aftur saman og setja það í bílinn, þar var dæmið tengt og kíkt á hvernig tekist hafi.

Skemmst er frá því að segja að mér finnst þetta hafa tekist betur til en ég þorði að vona, en kannski bjóst ég ekki við miklu. Hringirnir eru virkilega bjartir og afmarkaðir og nú sér maður hvað Halogen lýsingin er í raun og veru gul þrátt fyrir "bláar perur". Næst er svo að setja Xenon kittið í, það verður gert á næstu kvöldum, vona ég. Ég læt mynd fylgja með af ljósunum eins og þau eru núna, mér finnst myndin samt ekki sýna hringina eins afmarkaða og þeir eru í raun og veru. Þetta eru auðvitað ekki facelift ljós en mér finnst þetta samt virka betur en ljósin voru.

Endilega látið skoðanir ykkar í ljós á þessu.

Kveðja


Þórir I.

Image
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby ta » Wed 15. Mar 2006 22:19

flott, en 'eg vil sjá þetta með berum augum.
nýtur sín væntanlega best þegar er aðeins farið að rökkva.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby Þórir » Wed 15. Mar 2006 22:45

ta wrote:flott, en 'eg vil sjá þetta með berum augum.
nýtur sín væntanlega best þegar er aðeins farið að rökkva.


Jepp, nákvæmlega, þá er þetta hrikalega flott, að mér finnst. Ég á myndir en þá virkar þetta bara eins og heilt ljós. Svo kom mér soldið á óvart hvað þetta er rosalega hvítt, þessvegna hlakkar mig svo til að setja Xenon í, það er einmitt 6000K.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Geirinn » Wed 15. Mar 2006 22:55

Þetta þykir mér bara nokkuð snyrtilegt og mjög svo framar vonum.

Verður kjánalegt samt ef að límið úr límbyssunni fer að rifna af... en maður vonar það besta ;) Þetta lím virkar oft mjög vel... en getur strítt manni líka.

Væri gaman ef þú værir með glær stefnuljós... en þú hefur væntanlega skoðun á því sjálfur :)

Hlakka til að sjá framhaldið.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Þórir » Wed 15. Mar 2006 23:00

Geirinn wrote:Þetta þykir mér bara nokkuð snyrtilegt og mjög svo framar vonum.

Verður kjánalegt samt ef að límið úr límbyssunni fer að rifna af... en maður vonar það besta ;) Þetta lím virkar oft mjög vel... en getur strítt manni líka.

Væri gaman ef þú værir með glær stefnuljós... en þú hefur væntanlega skoðun á því sjálfur :)

Hlakka til að sjá framhaldið.


Sælir.

Jahhh, ég hef engar sérstakar áhyggjur af líminu, því er í raun bara sprautað í þéttar rákir milli hringjanna og linsunnar.

Jú, ég er alveg sammála, honum vantar glær stefnuljós, en ástæða þess að ég ákvað að prófa þetta var sú að ég tímdi bara ekki að eyða 70k í facelift ljós eða 25k í að prufa einhverja noname projectora frá USA sem ég finn engan skrifa um á netinu, halda frekar í orginalinn og betrumbæta hann.

Ég skal reyna að koma með betri mynd af þessu síðar.

Kv.
Þórir I.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Jss » Thu 16. Mar 2006 00:15

Þetta kemur bara mjög vel út sýnist mér á þessum myndum. Væri gaman að sjá þetta "live".
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Lindemann » Thu 16. Mar 2006 01:10

er ekki hægt að gera eitthvað svipað við e39 ljósin og svezel gerði við z3 ljósin? að taka appelsínugula glerið úr?
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Djofullinn » Thu 16. Mar 2006 09:58

Það er nákvæmlega ekkert að þessu :) Flott hjá þér.
Hefðir mátt baka framljósin til að taka appalsínugula ógeðið úr í leiðinni ;)
Hvað kostuðu hringirnir annars?
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Þórir » Thu 16. Mar 2006 11:17

Sælir.

Hmmmm, er það hægt? Er í alvörunni hægt að baka þetta úr? Vitiði hvernig það er gert?

Hringirnir kostuðu 36$ plús sendingarkostnað, samtals eitthvað um 60$, tollur 1300 kall.

Þetta kemur samt töluvert betur út Real live.

Ég tek svo nýjar myndir þegar ég verð kominn með Xenon í.

Kveðja
Þórir I.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Aron Andrew » Thu 16. Mar 2006 11:25

BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby ta » Sat 18. Mar 2006 01:26

framljósin á pre-facelift þarf ekki að baka til
að opna, og hægt að fá hvít stefnuljós án þess
að kaupa allt ljósið (unlike facelift)

Image
http://cgi.ebay.de/BLINKER-5-er-BMW-E39 ... dZViewItem
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Sælir.

Postby Þórir » Wed 29. Mar 2006 23:21

Jæja, svo sem ekkert update, en ætlaði bara að segja ykkur að hringirnir loga enn og ekkert vesen með OBC.

Næst er bara að setja Xenon í, það gerist vonandi í vikunni, er kominn með ágætis hugmynd um hvað til þarf og hvernig ég geri það.

Annars, ef einhver hefur séð bílinn eftir að ég setti þessa hringi í, þá langar mig endilega að heyra hvað fólki finnst.

Kveðja
Þórir I.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Þórir » Mon 03. Apr 2006 09:45

Updeit.

Jæja Xenon fór í bílinn í gær og virkaði vel allt þar til að ég startaði bílnum í morgun, þá var bíllinn eineygður. ARRRGGGH. Kíki á þetta í kvöld, vona bara að það sé ekki pera eða ballest sem er farinn.

Þetta lúkkaði allavegna geðveikt, meðan það virkaði.

Kv.
Þórir I.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

PreviousNext

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests