jæja ný dæla komin í og alles flotterí..
En eitt sem ég er að pæla, þegar ég ætlaði að fara tappa lofti útaf kerfinu þá kemur bara ekkert loft, kemur bara vökvi,,, á ég að taka því sem bara góðu og fara að keyra eða er eitthvað sem ég er að gera vitlaust.
Ég kveikti á bílnum, stappaði bremsuna niður nokkrum sinnum. Tók svo tittinn og skrúfaði frá en það kom bara ekkert.. Svo tók ég hann alveg úr þá byrjaður að koma olía svona hægt og rólega.




