IvanAnders wrote:
gstuning wrote:
IvanAnders wrote:
ef að um álhedd er að ræða að þá segi ég ALLTAF plana! Mér dettur ekki í hug að taka sénsinn á því

taka hvaða séns?
Ef það er ekki skekkja þá til hvers?
Hver eru rökin þín?
Ég er alls ekki að segja að það geti ekki sloppið og allt verið í lagi með "óplanað" hedd! Málið er bara að EF að það sleppur ekki að þá þarf að rífa allt draslið í sundur aftur og spurning hvort að framleiðandi og samviskan leyfi manni að nota aftur heddpakkninguna og boltana (þó að það geti verið í lagi) en mín persónulega skoðun á þessu er að ef að ég er til dæmis að laga bíl fyrir einhvern annan en sjálfan mig og ætla að taka ábyrgð á viðgerðinni að þá vil ég frekar rukka nokkur k+ og vera safe, en ekki sorry!

Þetta er eins og að prufa bensín áður en þú setur það á bílinn.
Balenceraru alltaf dekk og felgur ef þú tekur þau af áður en þú setur þau aftur á?
Ef það er gengið í skugga um það að heddið er ekki bogið á neinn hátt
þá sé ég EKKERT fyrir því að það sé ekki í lagi að nota það óplanað,
Dæmi,
Nýtt hedd frá framleiðanda.
Maður gerir ráð fyrir að allt sé í gúddí, og boltar það beint á,
Notað hedd,
Það stenst allar kröfur um hedd í lagi, og þvi er það jafngilt og nýtt hedd,
og því í fínu lagi að bolta það beint á.
Ekki eru menn að plana hedd sem eru ónotuð?
Svo er ég ekki að tala um að setja 2x4 spítu á heddið heima hjá sér og
halda að maður sé að mæla eitthvað , ég er að tala um að láta athuga það almennilega.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
