bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 07. May 2025 22:36

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: e-34 535 i bsk.
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 14:05 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
EDIT:
Bíllinn hefur verið festur og telst því að öllum líkindum seldur.

Jæja, ég ætla að athuga hvort e-r hér hafi áhuga á bílnum mínum.

Þetta er semsagt:

BMW 535i ´90 módel BSK

Ekinn 220þús. km, 10þús. á Íslandi

3 eigendur í þýskalandi og þjónustubók uppí 160þús. km. ef ég man rétt. Tók okkur Bjarka hér á spjallinu (sem aðstoðaði mig við innflutninginn) góðan tíma að finna þennan bíl!

Svartsanseraður, shadowline með svartri sportleður-innréttingu úr m5 (ekta leður í hurðarspjöldum líka og hægt að redda leðruðum miðjustokk, hanskahólfi o.þ.h.) og það er skíðapoki.

Er á 16" bbs felgum (klassísku bmw) á bridgestone blizzak ónelgdum vetrardekkjum, ekin ca. 5þús km. (ca. 70þús kr.virði)

Vélin er í mjög góðu standi, það helsta sem þarf að hafa áhyggjur af með þessar vélar er að knastásinn slitni vegna lélegrar skrúfu sem var í olíusysteminu en hann er stráheill í þessum og olíuljósið fer mjög fljótt þannig að það þarf ekki að hafa áhyggjur af því.

Þetta er semsagt 3,5 lítra vél, um 220 hö. sem er mjög skemtileg og hentar bílnum vel sérstaklega við beinskiftinguna. Nóg af togi, þægilegur í krúsið en vel til í að leika ef mann langar. Uppgefnar hröðunartölur eru 7,6 í 100 en ég hef séð tölur á netinu uppá 7 sem ég tel vel raunhæft miðað við mína reynslu og samanburð :wink: og hann vinnur bara betur ef e-ð er eftir það.

Ný búið að skipta um kúplingu, pressu og legu í bílnum vegna þess að kúplingslegan fór en diskurinn átti samt nóg eftir.

Bíllinn er þó með endurskoðun og það sem þarf aðallega að skipta um eru bremsudiskar að aftan.

Síðan er hægra frambrettið örlítið laskað en ég á nýtt sem á bara eftir að sprauta og setja á og sömuleiðis vantar spegilinn.

Eina ryðið er smá blettur í hægra afturbrettinu.

Undirvagninn er stráheill enda er þetta þýskalandsbíll og allar hlífar ennþá undir.

Það sem ég hef gert er að taka hvarfakútana undan þannig að það er nokkuð reffilegt hljóð núna, blúbbar skemtilega og djúpt á lágum snúningi og dólinu en fer síðan að öskra soldið eftir 3k snúninga. Einnig eru ásoðnir stærri stútar á pústið af fyrri eiganda.

Síðan er náttúrulega þetta venjulega, m.a.:
- 4 x rafdrifnar rúður
- Topplúga
- Stór aksturstölva
- Kastarar

Eyðslan er mjög skynsamleg, var mjög hræddur við hana áður en ég fékk bílinn en eyðslan frá því ég fékk bílinn er 14,9 skv. aksturstölvu, nánast eingöngu hér innanbæjar. Síðan er alveg hægt að koma honum í tæpa 14 og náttúrulega alveg uppúr, fer bara eftir því hvernig maður er að keyra og hvar. Hefur aldrei farið mikið uppfyrir 15 hjá mér sem ég tel mjög gott, allt innanbæjarmælingar.

Verðið er eiginlega samningsatriði, ef bíllinn er tekinn eins og hann er í dag þá vill ég fá 500 þús stgr. En já ok 490 (hljómar betur :wink: ) og það fylgir pioneer mp3 spilari þá með. Tel það eðlilegt miðað við prísinn sem er að ganga úti í þýskalandi o.þ.h.



Áhugasamir hafi endilega samband í síma: 865-9599

Stebbi

MYNDIR:
http://www.cardomain.com/ride/2123424

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Last edited by zneb on Wed 15. Feb 2006 18:13, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 14:14 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Sep 2005 13:17
Posts: 357
Location: Ísland
e34 535!!! :drool: :drool: :drool: :drool:

_________________
Ketill Gauti Árnaon
e34 525ix touring '92 seldur
e36 316i '96 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 18:35 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 22. Aug 2003 22:27
Posts: 663
Langar þér í Hilux á 38"

_________________
Geir Harrysson
F11 535d x-drive
Seldir BMW
E39 525D
E38 740i
E39 540i
E34 M5
E34 540i
E34 530i
E36 320i coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:12 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
Geir-H wrote:
Langar þér í Hilux á 38"


Ekki mikið fyrir jeppa þannig að það gengur ekki.

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Viltu E30 og cash???

Þarf að eignast 535 aftur 8)

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég hef keyrt þennan ,
Djöfull er gamann af M30B35 power,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
ég verð að fá þennan bíl 8)

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Hversu langan tíma tekur það tryggingarnar að borga út bílinn manns?? :roll:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 20:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Jón Ragnar wrote:
Viltu E30 og cash???


heheh I have tried ;)
but faild :(

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 22:13 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
OOOOO Mig langar í 535 aftur.. Rosalegt það sem ég var ánægður með gamla :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 23:33 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
Ég er ekki mikill e30 maður þannig að þeir heilla mig ekki mikið í skipti. E34 er klárlega tegundin mín :wink:

Já, síðan má bæta við að það er gott m-tech II stýri og blaupunkt aukahátalarar í afturhillu, reyndar ekki tengdir.

En jú, þetta eru mjög skemtilegir alhliða bílar, "all you´ll ever need" :)

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 23:35 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
djöf.. helv.. andsk.. ÉG ER AÐ VERÐA BRJÁLAÐUR Á BMW LEYSI!!!!

Ég væri svoooo til í að prófa að eiga svona bíl í smátíma. Tekurðu reiðufé?


..djók, ég verð víst að sitja á mér í soldinn tíma :?

Eflaust verulega skemmtilegur bíll og lítur mjög vel út. Gangi þér vel með söluna. Mér finnst líklegt að þessi verði ekki lengi að fara..

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Feb 2006 23:55 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Jul 2005 19:53
Posts: 74
Þetta er alveg TOPP PRÍS!!

Væri ekkert smá til í þennann

_________________
Honda Civic 1.6 VTi '99
BMW 525i '91 ///Seldur///


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 13. Feb 2006 00:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Já þessi bíll er alveg í lagi og Stebbi er bara búinn að bæta hann. Bíll sem lítur alveg rosalega vel út og fær toppeinkunn frá mér 8)

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 13. Feb 2006 01:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
zneb wrote:
Ég er ekki mikill e30 maður þannig að þeir heilla mig ekki mikið í skipti. E34 er klárlega tegundin mín :wink:

Já, síðan má bæta við að það er gott m-tech II stýri og blaupunkt aukahátalarar í afturhillu, reyndar ekki tengdir.

En jú, þetta eru mjög skemtilegir alhliða bílar, "all you´ll ever need" :)


Plís ekki segja mér að það er búið ða skera úr hillunni fyrir hátölurunum?

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 57 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group