EDIT:
Bíllinn hefur verið festur og telst því að öllum líkindum seldur.
Jæja, ég ætla að athuga hvort e-r hér hafi áhuga á bílnum mínum.
Þetta er semsagt:
BMW 535i ´90 módel
BSK
Ekinn 220þús. km, 10þús. á Íslandi
3 eigendur í þýskalandi og þjónustubók uppí 160þús. km. ef ég man rétt. Tók okkur Bjarka hér á spjallinu (sem aðstoðaði mig við innflutninginn) góðan tíma að finna þennan bíl!
Svartsanseraður, shadowline með svartri sportleður-innréttingu úr m5 (ekta leður í hurðarspjöldum líka og hægt að redda leðruðum miðjustokk, hanskahólfi o.þ.h.) og það er skíðapoki.
Er á 16" bbs felgum (klassísku bmw) á bridgestone blizzak ónelgdum vetrardekkjum, ekin ca. 5þús km. (ca. 70þús kr.virði)
Vélin er í mjög góðu standi, það helsta sem þarf að hafa áhyggjur af með þessar vélar er að knastásinn slitni vegna lélegrar skrúfu sem var í olíusysteminu en hann er stráheill í þessum og olíuljósið fer mjög fljótt þannig að það þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
Þetta er semsagt 3,5 lítra vél, um 220 hö. sem er mjög skemtileg og hentar bílnum vel sérstaklega við beinskiftinguna. Nóg af togi, þægilegur í krúsið en vel til í að leika ef mann langar. Uppgefnar hröðunartölur eru 7,6 í 100 en ég hef séð tölur á netinu uppá 7 sem ég tel vel raunhæft miðað við mína reynslu og samanburð

og hann vinnur bara betur ef e-ð er eftir það.
Ný búið að skipta um kúplingu, pressu og legu í bílnum vegna þess að kúplingslegan fór en diskurinn átti samt nóg eftir.
Bíllinn er þó með endurskoðun og það sem þarf aðallega að skipta um eru bremsudiskar að aftan.
Síðan er hægra frambrettið örlítið laskað en ég á nýtt sem á bara eftir að sprauta og setja á og sömuleiðis vantar spegilinn.
Eina ryðið er smá blettur í hægra afturbrettinu.
Undirvagninn er stráheill enda er þetta þýskalandsbíll og allar hlífar ennþá undir.
Það sem ég hef gert er að taka hvarfakútana undan þannig að það er nokkuð reffilegt hljóð núna, blúbbar skemtilega og djúpt á lágum snúningi og dólinu en fer síðan að öskra soldið eftir 3k snúninga. Einnig eru ásoðnir stærri stútar á pústið af fyrri eiganda.
Síðan er náttúrulega þetta venjulega, m.a.:
- 4 x rafdrifnar rúður
- Topplúga
- Stór aksturstölva
- Kastarar
Eyðslan er mjög skynsamleg, var mjög hræddur við hana áður en ég fékk bílinn en eyðslan frá því ég fékk bílinn er 14,9 skv. aksturstölvu, nánast eingöngu hér innanbæjar. Síðan er alveg hægt að koma honum í tæpa 14 og náttúrulega alveg uppúr, fer bara eftir því hvernig maður er að keyra og hvar. Hefur aldrei farið mikið uppfyrir 15 hjá mér sem ég tel mjög gott, allt innanbæjarmælingar.
Verðið er eiginlega samningsatriði, ef bíllinn er tekinn eins og hann er í dag þá vill ég fá 500 þús stgr. En já ok 490 (hljómar betur

) og það fylgir pioneer mp3 spilari þá með. Tel það eðlilegt miðað við prísinn sem er að ganga úti í þýskalandi o.þ.h.
Áhugasamir hafi endilega samband í síma:
865-9599
Stebbi
MYNDIR:
http://www.cardomain.com/ride/2123424