bebecar wrote:
fart wrote:
Ef við tökum síðan Autobahn keyrslu þá keyrði ég til frakklands á laugardag, c.a. 60km leiðin. Lá í 180-200 í lengri tíma og það er bara helvíti þreytandi. Maður bryður ekkert salstangir með kók í klofinu á þeim hraða. Þá er hvort eða er nauðsynlegt að stoppa reglulega.
Það getur verið lýjandi að aka svona hratt, en maður vennst því furðu fljótt ef maður er einn í bílnum eða með góðann kóara (án barna)...
Sammála því að þetta venst ótrúlega vel. Þegar ég var að keyra fyrst á hraðbrautunum þá fórum við yfirleitt ekki mikið upp fyrir 130 vegna þess að bílarnir sem við vorum á þá gáfu ekki tilefni til annars og okkur fannst það alveg nógu hratt.
Þegar maður er farinn að keyra hraðbrautirnar nokkuð reglulega þá er þetta hins vegar fljótt að koma og í dag finnst mér þægilegast að að vera á 170-180 ef umferðin gefur tilefni til þess. Yfirleitt er það ekkert mál utan mesta annatíma.
Það hefur líka áhrif að ef hraðbrautirnar eru þriggja akreina eins og oft er þá vil ég helst vera vinstra megin. Ástæðan er sú að það getur verið ferlegt að vera á miðakrein þar sem menn koma inn af hægri akrein á 90 en af vinstri akrein á 170 og yfir.