Ég hef sjálfur hugsað mikið um þetta þar sem ég á "kærustu" útí barcelona og var pælingin að fljúga til þýskalands og versla E39 og keyra niður til spánar.
En þá vöknuðu hjá mér gríðarlega margar spurningar, t.d. bara hvernig það er með að skrá þýskan bíl á íslenskan ríkisborgara? Má maður keyra um alla evrópu á þýskum númerum? Bíll með navi..hversu stórt er það system, maður er nú varla að fara að setjast inní hann í þýskalandi, slá inn götuheitið í barcelona og keyra af stað?



