Enn og aftur bíllaus, en núna er það þess virði...

Hér skal spjalla um BMW.

Enn og aftur bíllaus, en núna er það þess virði...

Postby Moni » Wed 07. May 2003 01:37

Ég hef verið alveg einstaklega heppinn með bimmann... eða ekki :D
Það er nú samt ekki alltaf eitthvað að bila eins og margir vilja segja um BMW, það er nú yfirleitt ég sem geri eitthvað sem veldur því að hann fer á verkstæði, eða aðrir..( það er auðvitað alltaf öðrum en mér að kenna :D ) T.d. í mars minnir mig þá "slide-aði" ég utan í kant og drap þá 2 stk felgur + 1 stk spyrnu + rispaði sílsana og stuðarann, það var ekki nógu gaman... Svo var keyrt aftan á mig og það var strax gert við það, fékk bílinn afhentan og fór og keyrði aftan á Corollu með dráttarkúlu (konan átti bara ekki að stoppa :x :D ) En núna sér fyrir endann á því að rúnta um á klesstum BMW og úr verður fallegri bíll, ég pantaði nebblilega ///M svuntu á framendann og sérpantaði svo aukalega væng neðan á svuntuna, ekki alltof sítt, bara mjög smekklegt og töff, B&L voru víst að panta þetta í fyrsta skipti fyrir mig núna, sögðu það allavega (tók rétt tæpan mánuð að fá þetta), ég hef séð bíl með þennan væng hérna en ég veit að hann kom með hann að utan... Svo verður kagginn samlitaður líka...
Ég er svo spenntur eftir að fá hann til baka og hef ekkert að gera meðan ég er bíllaus að ég varð bara að deila þessu með ykkur :D
Er líka að bæta upp tapaðan tíma hér í klúbbnum :D

Hér er mynd af svipuðum framenda eins og minn mun lúkka:
http://images.cardomain.com/member_img_a/306000-306999/306297_2_full.jpg

http://images.cardomain.com/member_img_a/242000-242999/242561_2_full.jpg

En annars óska ég ykkur bara gleðilegs sumars og lifið heilir og tjónlausir!!! :D
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby bebecar » Wed 07. May 2003 09:18

Þetta er flottur framendi.... en þú verður að hætta að keyra svona á! Það er ekkert vit í því maður!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Wed 07. May 2003 09:35

já þetta er mjög töff að setja svona undir stuðarann. mig langar einmitt mjög í svona :) hvað kostar þetta hjá B&L ?
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Moni » Wed 07. May 2003 13:06

Já bebecar ég er hættur því núna, er farinn að keyra hægt og með alla athygli á veginum!!!... Eða reyni það allavega :D

Gunni... M framstuðarinn er á bilinu 60- 70 þús. með öllu, listunum og svoleiðis, það er svo mikið af einhverjum smellum og töppum sem ég varð víst að taka með, bara sjálf kápan er á 50 þús (+/- eitthvað smá)
Neðsta unit-ið kostar tæpan 10 þúsund kall og svo pantaði ég líka net ( kostar einhvern 7-8000 kall) sem fittar inn í loftopið og það þurfti að sérpanta bæði stykkin, tók rétt tæpan mánuð og sölumennina örugglega heilan dag að finna hvar þeir gætu pantað það, því eins og þeir sögðu mér þá var þetta fyrsta skiptið sem þeir flytja þetta inn...
Það var samt einhver gæi sem pantaði síðast svona stuðara og hann borgaði 65.000 bara fyrir sjálfan stuðarann (stóra stykkið :D) B&L gaurarnir sögðu að hann hefði borgað alltof mikið og sögðust selja mér þetta á aðeins sanngjarnara verði... sem er mjög gott!

ég held að Lorenzinn yrði geðveikur ef þú mundir setja allt M kittið á hann, framsvuntuna+neðsta dótið og svo afturstuðarann og sílsakittið, Held að hann yrði með þeim flottari E36 hérna á klakanum!!!
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby arnib » Wed 07. May 2003 13:16

Framsvuntan er nú þegar á honum :o
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Gunni » Wed 07. May 2003 13:17

Moni wrote:Það var samt einhver gæi sem pantaði síðast svona stuðara og hann borgaði 65.000 bara fyrir sjálfan stuðarann (stóra stykkið :D) B&L gaurarnir sögðu að hann hefði borgað alltof mikið og sögðust selja mér þetta á aðeins sanngjarnara verði... sem er mjög gott!


:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: Það var á minn bíl :lol: :lol: :lol: :lol: Tryggingarnar borguðu þannig að mér var ALVEG sama hvað þetta kostaði. ég pantaði þetta reyndar. En djöfull hefði ég orðið reiður ef ég hefði borgað hann sjálfur :) HEHEHEH mér finnst þetta fyndið :!:

Ég held að stuðarinn með kösturum og öllum listum hafi verið að koma fyrir 100þúsund kell. sem er EKKI mjög gott :lol: :lol:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Moni » Wed 07. May 2003 13:44

Nú var það á þinn bíl, mig minnir samt að gæinn í B&L hafi sagt að það hefði verið á Compact bimma, en það getur hafa misskilist, ertu með M svuntu á honum núna???

Já ég á eftir að redda mér kösturum, ef einhver getur reddað mér þeim ódýrt þá má hann alveg láta mig vita :D
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby bjahja » Wed 07. May 2003 14:38

Þetta er nákvæmlega eins framendi og ég ætla að fá mér :evil: :lol:
En ég kaupi þetta reyndar ekki orgilnal held ég, á eftir að reikna út hvað þetta mun kosta af BMWspeciallisten, býst við að panta þetta þaðan.
p.s hvernig er bílinn þinn á litinn?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Moni » Wed 07. May 2003 14:43

Já ok ég vildi kaupa þetta úr umboðinu, kannski bara sérviska :D Bíllinn minn er blár, dökkur frekar, minnir að liturinn heiti Maurituz Blau eða blue eða eitthvað svoleiðis... man ekki alveg...

Ætla að kíkja við á sprautuverkstæðið á eftir og ath. hvernig gengur með þetta, er að verða geðveikur á að bíða, samt bara búinn að bíða í einn sólarhring!! :D
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby bjahja » Wed 07. May 2003 14:50

Moni wrote:Já ok ég vildi kaupa þetta úr umboðinu, kannski bara sérviska :D Bíllinn minn er blár, dökkur frekar, minnir að liturinn heiti Maurituz Blau eða blue eða eitthvað svoleiðis... man ekki alveg...

Ætla að kíkja við á sprautuverkstæðið á eftir og ath. hvernig gengur með þetta, er að verða geðveikur á að bíða, samt bara búinn að bíða í einn sólarhring!! :D


Mig langar líka rosalega til þess að kaupa þetta úr umboðinu en maður hefur ekki efni á því í augnarblikinu :cry: :wink:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Moni » Wed 07. May 2003 15:23

Já ég hafði heldur ekki efni á því, ég ætlaði mér bara að kaupa þetta og gerði það, er bara í sparnaði núna, borða bara 2 á dag, vatn og brauð og skeini mér með gömlum dagblöðum, pimpa út systir mína og týni svo flöskur í bænum um helgar... :D neinei kannski frekar ýkt hjá mér, en ég reyni bara að eyða sem minnstu í vitleysu og svoleiðis á meðan þetta gengur yfir... En það sem það er ótrúlega erfitt :!: :!:
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests