E36 '92 móðuvandamál

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E36 '92 móðuvandamál

Postby drolezi » Thu 05. Jan 2006 23:29

Núna hef ég verið að fá alveg svakaleg vandamál með móðu inni í bílnum og eyði ég oftast 5 mínútum, í hvert einasta sinn sem ég ræsi bílinn kaldann, í að losna við móðuna.

Þetta var sérstaklega mikið vandamál í dag. Það myndaðist móða á framrúðunni meðan ég hljóp rétt inn (5 mínútur í mesta lagi).

Kann einhver skil á þessu?

Þetta er vægast sagt að gera mig geðveikann, sérstaklega þegar móðan frýs . . . :evil:
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Postby ///Matti » Thu 05. Jan 2006 23:32

Gæti verið raki inní bílnum,veit það ekki :?
00 E39 540 M-tech (seldur)
94 E36 M3 Cabrio (seldur)
User avatar
///Matti
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1344
Joined: Fri 17. Oct 2003 18:54
Location: myrk og mannaskít

Postby arnibjorn » Thu 05. Jan 2006 23:50

nákvæmlega sama vandamál hér!
Ég þoli þetta ekki.. og hvað meinaru með raka í bílnum?
Teppið í gólfinu þá blautt eða? :roll:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby drolezi » Thu 05. Jan 2006 23:56

Sko, ég hef haft hann innifyrir í þurrveðri í nokkra tíma undir industrial size hitablásara með allt opið.
Tók mottur úr og allt, ekkert blautt.

Þurrkaði svo allar rúður og þreif.

Tveimur dögum seinna kom ég að bílnum móðudrifnum.

Svo ÞARF ég að vera með klima unitið í gangi ef það er rigning úti eða með marga farþega, annars myndast bara móða.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Postby Bjössi » Fri 06. Jan 2006 00:01

er móða ekki bara staðalbúnaður í bmw, það hefur alltaf komið svona móða eins og þið lýsið af og til í öllum þeim bmwum sem ég hef umgengist og notað (e34, e39, e46 og e60) :D
User avatar
Bjössi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 381
Joined: Sat 07. Jun 2003 23:13
Location: Reykjavík

Postby drolezi » Fri 06. Jan 2006 00:10

Fór og skoðaði gamla pósta =)

fart wrote:Ef það kemur móða hjá þér þá er eitthvað að mistöðinni.


Flicker wrote:Ég myndi prófa að slökkva á miðstöðinni svona 10 sek áður en þú drepur á honum... það virkar hjá mér allavega... einnig heyrði ég að þú getur sett dagblöð eða einhvern anskotann í bílinn
---
Ef ég slekk á miðstöðinni rétt áður en ég drep á bílnum er eins og það lokist alveg fyrir hana einhvernvegin og þá kemur ekki eins mikil móða, það er eins og öll móðan komi úr miðstöðinni hjá mér alla vegana... reyndar er aldrei móða nema á framrúðunni hjá mér ef það er einhver móða á annað borð


Gæti þetta verið eitthvað AC tengt?

Ég er nefnilega nýbúinn(fyrir 2-3 vikum) að skipta um brunnið öryggi sem var víst eitthvað tengt AC.
Man ekki nákvæmlega hvar það var, en það var allavega 30A.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Móða

Postby Hrannar » Fri 06. Jan 2006 01:09

Var með þetta sama vandamál í E46 bíl. Það þurfti að skipta um frjókornasíuna.
Þá lagaðist allt saman. Ég var einmitt að skipta um sömu síu í
E34 bílnum mínum. Þar var miðstöðin hreinlega hætt að virka.
Ég myndi ath. þetta.
User avatar
Hrannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 235
Joined: Fri 11. Apr 2003 11:03

Postby Angelic0- » Fri 06. Jan 2006 08:00

Danni á við sama vandamál að stríða :)

Og þetta virðist vera vesen hjá mér líka (rúðan hjá mér varð ógeðsleg þegar ég dró bílinn í vélarskipti í gær)
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby grettir » Fri 06. Jan 2006 10:19

Það safnast alltaf raki í gólfteppið og svampinn undir því.

Ég set 2-3 fréttablöð undir hverja mottu þegar þetta er orðið vandamál. Blöðin draga í sig bleytuna og þurrka teppið. Eftir 2-3 daga þá er óhætt að henda blöðunum eða setja ný blöð ef það er ennþá raki í bílnum.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby karlbark » Sat 07. Jan 2006 03:56

Já, þetta er einmitt að hrjá mig líka.

Sem er auðvitað afar slæmt í annars svona góðum eðalbíl og gamli góði E-32-inn minn er. Mér finnst koma meiri móða en í nokkrum bíl sem ég hef átt vel lengi.

Ókei, þetta með frjókornasíuna var góð ábending, ég hef einmitt ætlað að skipta um hana í nokkurn tíma en ekki látið verða af því. Nú verður það drifið af sem fyrst! Rakst einmitt á þessa spjallsíðu í fyrradag:
http://www.bimmerboard.com/forums/posts/54597

Svo er annað sem mig RÁMAR í af sænskri spjallsíðu...
(Ath. ég las þetta einhvern tíma fyrir 1-2 (?) árum þegar ég bjó úti í Svíaríki, svo ég er ekki viss um hversu rétt ég er að hafa þetta eftir).
En það gekk sem sagt út á það að það gæti verið einhver bilun (eða leki) í miðstöðinni.... sem sagt einhvers staðar inni í mælaborðinu.

Þetta var reyndar um SAAB 9000 CD sem ég átti úti, en ég las það líka einhvers staðar (nýlega) að í miðstöðinni á BMW væri eins konar mini-radiator sem hleypir inn heitu vatni af vélinni til þess að hita innanrýmið hraðar. Ef að það kæmi leki að þessu þá gæti myndast raki í teppum etc.

Veit ekki hvort þarna var verið að tala um sama hlut og í SAABinum.
Þar minnir mig að þetta hafi verið nefnt "heater-core"... en þó var þessi síða nú á sænsku, svo eitthvað er mig kannski að misminna þetta...

Anyway... þið getið spáð í þetta... just my två kronor (2 cents)

P.S.
Já...og ef einhver hefur uppástungu um hvert ég gæti leitað með að láta laga þetta (og fleira smálegt) fyrir mig, þá endilega komið með þær.
Ég geri þetta ekki sjálfur og þar sem ég hef ekki búið hérna heima undanfarin ár, þá er ég ekki svo vel inni í bílamálunum hérna...
Karl Trausti - 735i
User avatar
karlbark
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sat 28. May 2005 18:57
Location: Reykjavík

Postby ta » Sat 07. Jan 2006 13:44

það má spyrja konuna ef það er erfitt að
komast að, eins og í þessu tilfelli :D
Image

´Yes, that's actually his wife in the photo, changing the microfilter. What a woman!´
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby srr » Sat 07. Jan 2006 14:01

Svona eiga kvenmenn að vera. 8)
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby adler » Sat 07. Jan 2006 18:31

Í þau skipti sem ég hef lent í móðu vandamálum þá hefur oftast verið lokað fyrir loft rásina sem tekur loftið utanfrá, stundum hefur lokan staðið föst eða að menn eru t.d. að þrífa mælaborðið og hafa hreift takkann sem lokar fyrir loftið en kannski hefur hann ekki verið hreifður svo árum skiptir en svo festist lokan og menn bara fatta það ekki fyrr en að allt fer í móðu.
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby Knud » Sat 07. Jan 2006 18:42

Var ekki líka efni frá autoglym sem eyðir móðu?
eða er ég bara að rugla? :?
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby bebecar » Sat 07. Jan 2006 19:51

Ég lennti í þessu á mínum M5 - skipti um frjókornasíuna og BINGÓ! Engin móða og 4 vindstig inn í bílnum á hæstu stillingu 8)
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests