bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 24. May 2025 18:37

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 
Author Message
 Post subject: Hópferð til Birmingham
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 11:01 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 22. Sep 2002 16:11
Posts: 129
Location: Garðabær
Póstur sem ég fékk sem ég læt flakka hér;

Góðan daginn og gleðilegt ár!

Eftir 9 daga verður haldið í 3 ½ dags glæsilega hópferð bílageggjara til Birrmingham í Bretlandi - á stærstu keppnisbílasýningu heims. Þar verða 600 bílar sem metnir eru á samtals um 100 milljarða króna.. Allar gerðir af kepnnisbílum – það flottasta sem til er. Fullt af nýjustu tækninni í bílabransanum.
Þarna verða 640 sölubásar með ýmsan varning er tengist bílum svo sem verkfæri, íhluti, varahluti o.s.frv.
Þeir sem eiga fyrirtæki geta því lækkað ferðakostnaðinn með því að taka þetta sem viðskiptaferð sem er frádráttabær frá skatti
Þetta er mjög lifandi sýning með nokkrum “live” svæðum með bílum á fullri ferð – sem sé ekki bara uppstilltir bílar en samt vera glæsikvendin á sínum stað – fullt af þeim.

Rúsinan í pylsuendanum verður einkaheimsókn íslenska hópsins í höfuðstöðvar BMW Williams-formúluliðsins í Oxfordshire. Það er mjög erfitt að komast inn á slíkan stað enda um að ræða helgustu vé kappakstursliðanna. Búast má við frábærum viðtökum. Hér er kannski eina tækifærið í lifinu í þessum efnum!!!
Frekari upplýsingar í tveimur viðhengjum – stutt frétt og litauglýsing.
Takmarkað sætaframboð – fyrstur kemur, fyrstur fær.

Nánari upplýsingar hjá:
Fyrsta flugs félagið
Gunnar Þorsteinsson – alla daga, líka um helgar frá 10-22

Símar:
663 5800
663 5801
561 6112

Sýndu samstöðu og bíladelluna í verki og sendu þennan póst áfram til vinnufélaga, vina og kunningja.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 11:04 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Fyrsta flugs félagið – í samvinnu við Iceland Express – býður hópferð á stærstu sportbílasýningu í heimi - AUTOSPORT INTERNATIONAL. Í ár er sannarlega við hæfi að fara á þessa miklu sýningu því nú er 100 ára afmæli kappaksturs í heiminum.

Við erum ekki bara að fara á þessa glæsilegu bílasýningu. Íslenska hópnum er boðið í einkaheimsókn til Williams-kappakstursliðsins, í sjálfar höfuðstöðvar þessa heimsþekkta formúluliðs en þær eru í Oxford-skíri. Hreint út sagt – það er mjög erfitt að komast inn á slíka staði og hér njótum við persónulegra tengsla.

Heiðursgetur ferðarinnar verður Sverrir Þóroddsson, eini Íslendingurinn er keppt hefur í formúlukeppnum – maður með góð tengsl og gríðarlega þekkingu. Fararstjóri verður Gunnar Þorsteinsson, formaður Fysrta flugs félagsins, sem hefur 12 ára reynslu að baki í hópferðum af þessu tagi.

Eins og sjá má mun bílasýningin ekki bara snúast um kappakstur – langt frá því. Þarna verða líka allar gerðir af bílum og þetta er mjög lifandi sýning – búast má við mjög mikillri “aksjón”.

Dæmi um þetta sýna eftirfarandi punkar:

• Stærsta sýningarhöll Bretlands – eins og 10 Laugardalshallir
• 640 sýningabásar
• 1000.000 gestsir
• 600 sýningabílar – 11 milljarða virði
• Frægasta og fínasta fólkið ú Formúlunni
• Nýjustu bílarnir úr Formúli 1, 2 og 3
• Úrval fornkappakstursbíla síðustu 100 ára
• Dýrustu lúxussportbílar í heimi
• Sprækustu rallýbílar sem til eru
• Glóðvolgir heimsmíðaðir bílar beint úr bílskúrunum
• Bílaframleiðendur afhjúpa nýjar gerðir af bílum
• Nýjasta tækni í bílaverkfræði og -hönnun
• Kynningar á allra nýjustu tækni í viðgerðum og smíði bíla
• Nýjustu íhlutir, varahlutir og verkæri.
• Reykspólandi bílar á frábæru, lifandi, mjög stóru sérsvæði
• Alvörui kartbílabratir fyrir fullorðna og börn
• Kynningar á helstu bílaklúbbum Bretlands
• SÖLUSÝNING - Verslað fyrir 400.000 á mínútu
Verkfæri, íhlutir, aukahlutir, minjagripir, fatnaður, bækur, gjafavörur og fleira og fleira.

TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ - Setjið í fluggírinn og stígið bensínið í botn!

Nánari upplýsingar
Fyrsta flugs félagið – Hægt að hringja frá 10-22, virka daga og líka um helgar
Símar: 561 6112 – 663 5800 - 663 5801 – 663 5802

Upphaf ferðar: 13.01.2006, föstudagur síðdegisflug
Lok ferðar: 16.01.2006, mánudagur, kvöldflug

Hótel: Thistle Birmingham City. Þrjár nætur á þessu fjögurra stjörnu hóteli sem er mjög vel staðsett í Birgmingham. Stutt á bílasýninguna og stutt í miðbæinn.

Áhugaverðir staðir: Fyrir utan bílasýninguna mælum við t.d. með stöðum eins og Vísindasafninu, Cadbury World og National Sealife Center.

Verð: 58.500.- á mann í tvíbýli / 63.600.- í einbýli

Innifalið: Flug, skattar, hótel, morgunverður, allar rútuferðir, íslensk fararstjórn, VIP-hálsnafnspjald, gengisbreytingatafla og prentuð ferðadagskrá.

Aukakostnaður: Aðgöngumiðar á sýninguna. Almennur miði kostar 26 pund á dag. Mælum hins vegar með VIP-miða sem er aðeins 6 pundum dýrari en sá opnar ýmis svæði á sýningunni sem annars eru lokuð almenningi. Þeim aukakostnaði verður því vel varið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 11:40 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27
Posts: 1452
zx wrote:
Þar verða 600 bílar sem metnir eru á samtals um 100 milljarða króna.. Allar gerðir af kepnnisbílum


IceDev wrote:
• 600 sýningabílar – 11 milljarða virði


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 13:49 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
11 milljarðar hljómar mun líklegra :lol:

En maður væri alveg til í að skella sér, bara verst að ég er að fara til köben sömu helgi :lol:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 14:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Maður væri nú alveg til í að kíkja í þessa ferð!!!

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 17:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Argh, það væri gaman að fara. Verst að ég er búinn að lofa mér í vinnu á laugardeginum :cry:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jan 2006 17:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
bimmer wrote:
Maður væri nú alveg til í að kíkja í þessa ferð!!!


58.000,- með hóteli...
Ekkert gríðarlegt..

Reyndar er ekki miðinn inni í þessu en hann er 24pund :!:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 10. Jan 2006 00:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55
Posts: 974
Ætlar einhver hérna að fara ?

Ég er mjög líklega að fara 8)

Kemur í ljós á morgun


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 12. Jan 2006 19:44 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55
Posts: 974
Ég er að fara, liggaliggalá 8)

Ætlar virkilega enginn hér ætlar að fara ???


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 12. Jan 2006 20:20 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
Væri vel til í það, bara soldið stuttur fyrirvari, bara muna að taka helling af myndum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 13. Jan 2006 01:56 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55
Posts: 974
siggik1 wrote:
Væri vel til í það, bara soldið stuttur fyrirvari, bara muna að taka helling af myndum ;)

Myndavélin kominn í hleðslu og tvö minniskort tilbúin.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 13. Jan 2006 17:16 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 17. Mar 2003 17:29
Posts: 374
Location: Cambridge
Ég var þarna í dag, mjög mikið af skemmtilegu dóti að skoða. Var ekki vopnaður myndavél í dag en verð það á sunnudaginn 8)

_________________
Gummi
´92 Mini [MR BIG]
´04 Jaguar X-Type


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group