Maður er nú þolinmóður maður og gefur fólki séns á að færa sig oftast, en þegar maður er kominn með harðsperrur í vinstri hendina af háuljósablikki og flauti og fólk annaðhvort fattar ekki hvað málið er eða verður bara hreinlega hneykslað á því hvers vegna í ósköpunum maðurinn fyrir aftan er að drífa sig svona mikið...
Ég hef mikið verið að skoða gjallarhorn á eBay og er bara að leita mér að einhverju góðu og ódýru til að geta kennt þessu fólki umferðarreglurnar "on the go"
Annars ætla ég ekki að tjá mig meira því ég hreinlega þori því ekki því þá fæ ég eflaust orð á mig sem einhver skapstór brjálæðingur. Afsakið bræðina en þetta er bara hlutur sem fer virkilega í taugarnar á mér
Drive safely!




