Sauðaorðabókin

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Sauðaorðabókin

Postby grettir » Wed 05. Oct 2005 10:40

Þessa snilld fékk ég í tölvupósti áðan. Ég veit ekki hver er höfundur, en það er greinilega alger snillingur:


Þetta auðveldar manni að skilja öll þessi hugtök í fjármálaheiminum

Að bera fé: Afklæða kind
Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap
Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur
Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur
Fégirnd: Afbrigðileg kynhneygð (Að girnast sauðfé)
Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket
Féhirðir: Smali
Félag: Lag sem samið er um sauðfé
Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé
Félegur: Eins og sauður
Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
Fjárdráttur: Samræði við kind
Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé
Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé
Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé
Fjármagn: Þegar margar ær koma saman
Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm -Tóndæmi
Fjármálaráðherra: Yfirsmali
Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda
Fjárnám: Skóli fyrir kindur
Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg
Fjársöfnun: Smalamennska
Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin
Fjárvarsla: Það að geyma kindur
Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum
Fjáröflun: Smalamennska

Fundið fé: Kindur sem búið er að smala
Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli
Grímsá: Kind í eigu Gríms
Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér
Hlutafé: Súpukjöt
Langá: Einstaklega löng kind
Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum
Norðurá: Kind að norðan
Opnibert fé: Fé í eigu ríkisins
Sauðburður: Þegar handbært fé er borið að á milli staða
Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags
Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast
Tryggingafé: Öruggt sauðfé
Veltufé: Afvelta kindur
Þjórfé: Drykkfelldar ær
Þverá: Þrjósk kind
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Joolli » Wed 05. Oct 2005 13:03

Hlutafé: Súpukjöt
hah!
M. Benz E320 Sportline '94 Svart Metallic
M. Benz E420 '94 Vínrauður
BMW 530iA '94 Diamondschwarts Metallic - Seldur
BMW 525iA E34 '94 Orientblau Metallic - Seldur
M. Benz 220E W124 '93 Ljósgrár - Seldur
BMW 316i E30 '90 Gletscherblau Metallic - Seldur
User avatar
Joolli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 457
Joined: Thu 03. Jun 2004 22:09
Location: Reykjavík

Postby elli » Wed 05. Oct 2005 13:15

Bahahahahah

ætli þetta hafi verið tekið af glósuvef Bændaskólanns á Hvanneyri :? og eigi við áfangann rollur 101 :?:
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Kristjan » Wed 05. Oct 2005 13:22

hahahaha þetta er snilld
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

.

Postby Wolf » Fri 07. Oct 2005 00:17

Mér finnst nú vera einhver Stormskers lykt af þessu....
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby X-ray » Fri 07. Oct 2005 01:12

Ja minnir slatta á orðabókina sem hann gaf út (snildar karakter mister stormsker)

Því ertu kerling svo svipljót og sérð´ ekki að ég var bara að fá honum úr, þvi að ég er maður er hugsa um tengslin, ef heiðin er lokuð þá fer maður þrengslin 8) (er nú ekki alveg rétt hjá mér en nokkuð nærri lagi)

Eða tælenski smá strákurinn við Dúmbó: Hey Dúmbó þetta venst nú bara andskoti vel. Dúmbó: það sagði hann pabbi líka :wink:

Hann stormsker er vanmentinn perla í okkar menningar samfélag... að mista kosti mínu mati

Saddam átti syni sjö, sjö sini átti Saddam
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests