E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að klárast

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Postby bimmer » Sun 14. Aug 2005 20:48

Takk, takk.

Var að koma í bæinn (önnur ferðin til Akureyrar síðan ég fékk bílinn :) )

Maður er alltaf að læra meira og meira inn á gripinn.

Varðandi DSC þá skelli ég honum í SPORT og DSC-off þegar ég er eitthvað að þrykkja honum. Maður þarf svolítið að passa sig á að missa hann ekki út að aftan en þetta er bara gaman. Það fyndið að sjá andlitið á mönnum á næstu ljósum eftir að búið er að spyrna.
Menn eru ekki alveg að fatta hröðunina á bílnum, hann lítur ekki endilega út fyrir að geta það sem hann getur.

Takmörkin sem Fart talar um eru væntanlega tengd þyngd bílsins, þe. þetta er þungur bíll og því eins gott að passa sig þegar maður er að hraða öllum þessum massa.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby fart » Sun 14. Aug 2005 22:43

allir bílar hafa sín takmörk, leiðinlegt að finna þau við rangar aðstæður.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby saemi » Sun 14. Aug 2005 23:27

bimmer wrote:Var að koma í bæinn (önnur ferðin til Akureyrar síðan ég fékk bílinn :) )


Sá þig á leiðinni norður, verst að það var í stoppi í Staðarskála. Parkeraði eins og fínn maður við hliðina á bílnum þínum. Hefði verið gaman að reyna að halda í við þig á leiðinni :D
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bimmer » Mon 15. Aug 2005 11:09

Hefði ekki verið mikið mál að halda í við mig - tengdamamma var í aftursætinu :)

Sá þig í Staðarskála, var ekki alveg að koma því fyrir mig hvaðan ég kannaðist við þig en fattaði það þegar ég sá bílinn þinn renna af stað.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby IvanAnders » Mon 15. Aug 2005 11:25

saemi wrote:
bimmer wrote:Var að koma í bæinn (önnur ferðin til Akureyrar síðan ég fékk bílinn :) )


Sá þig á leiðinni norður, verst að það var í stoppi í Staðarskála. Parkeraði eins og fínn maður við hliðina á bílnum þínum. Hefði verið gaman að reyna að halda í við þig á leiðinni :D


Og á hvaða bíl varst þú? E34 M5? :)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby saemi » Mon 15. Aug 2005 11:39

bimmer wrote:Hefði ekki verið mikið mál að halda í við mig - tengdamamma var í aftursætinu :)


Hahahaha, svekkjandi að vera með tengdarlögguna í aftursætinu :)

Það er bara verst við þennan blessaða veg milli RKV og AEY hvað hann er hæðóttur. Allst staðar stökkbretti við og við, verulega óþægilegt þegar maður er kominn yfir 110-120 (sem gerist bara í framúrtökum).

Annars er ég á því að það sé betra að fara þetta á E34 M5 heldur en E39 540i sem ég var núna á. Fjöðrunin er betri á M5-inum í þessum hoppum og skoppum.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Runkiboy » Mon 15. Aug 2005 11:50

Stórglæsilegur bíll. Til lukku
MB C180 esprit ´93 SELDUR!!
Nissan Terrano '96 SELDUR!!
BMW 525IA 1995
Runkiboy
Kassabílstjóri
 
Posts: 118
Joined: Tue 10. Feb 2004 15:38
Location: Hafnarfjörður

Postby Halli Smil3y » Mon 15. Aug 2005 18:17

ég var að kaupa mér bíl en mig langar að kaupa þennan núna... vertu í bandi eftir 2-3 ár ;)
Nissan Almera 1600 Luxury
320ia E36 ///M-tech *rip*
Halli Smil3y
Kassabílstjóri
 
Posts: 110
Joined: Thu 14. Jul 2005 00:17
Location: >_<

Postby Raggi M5 » Wed 17. Aug 2005 22:04

G-E-Ð-V-E-I-K-U-R-! Ekkert annað hægt að segja! :wink: 8)
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby bimmer » Sun 11. Sep 2005 10:22

Setti í bílinn Phatbox mp3 box frá Phatnoise. Þetta er græja með 80gb disk sem tengist í staðinn fyrir cd changerinn í skottinu. Maður stýrir þessu í gegnum útvarpstækið í bílnum og takkana í stýrinu. Nokkuð sniðug græja. Hægt að lesa meira um þetta og skoða myndir hér: http://www.phatnoise.com/products/digitalmediaplayers/index.php
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby fart » Sun 11. Sep 2005 12:57

Sniðug græja!

Er installið plug&play?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby zazou » Sun 11. Sep 2005 13:21

Þetta virkar spennandi, það væri gaman að fá að kíkja á hvernig það virkar.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby bimmer » Sun 11. Sep 2005 13:39

fart wrote:Sniðug græja!

Er installið plug&play?


Já þetta er alveg plug&play enda pantar maður fyrir hverja bíltegund.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Zyklus » Sun 11. Sep 2005 19:46

Virkilega fallegur bíll! Til hamingju!
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bimmer » Wed 05. Oct 2005 22:36

Jæja, búinn að framkvæma fyrstu viðgerð.

Reyndar ekki merkileg viðgerð, 4 skrúfur losaðar og skrúfaðar aftur en þá með nýjum loftflæðiskynjurum í inntakinu á vélinni (er það ekki soggrein á ísl?).

Forsagan er sú að eftir því sem ég hef keyrt bílinn meira og meira þá fór mér að finnast "kraftkúrvan" hálf skrýtin. Þegar maður var á WOT þá kom stundum "hik" í kraftinn, eins og bíllinn slái aðeins af. Svo var stundum hægagangurinn mjög grófur þegar bíllinn var kaldur og þurfti að láta hann ganga í 1-2 mín til að hann yrði keyrsluhæfur.

Eftir smá stúdíu á www.m5board.com þá fannst mér líklegast að þetta væru loftflæðiskynjararnir. Svo vel vildi til að þeir voru með group buy í gangi þannig að skynjararnir kosta $115. Í umboðinu held ég að þeir séu í nágrenni við 25 þúsund stykkið.

Fékk skynjarana í dag, skellti þeim í og tók smá rúnt. Bíllinn virkaði hálf funky fyrst, lausagangurinn út um allt, drap á sér 2-3 sinnum á Sæbrautinni í keyrslu. En eftir ca. 30 km akstur var allt komið í lag.

Þá tók maður spólvörnina af, setti sport mode on og HOLY CRAP!
Það eru þónokkur hross vöknuð af værum blundi!

Bíllinn er algjörlega stökkbreyttur, miklu meiri kraftur og throttle response er miklu betra. Fór upp á Bláfjallaveg og þar tók ég nokkur run (eftir að hafa farið í könnunarferð) og tókst að láta bílinn spóla í skiptingunni úr 2. í 3. sem hefur aldrei gerst áður.

Þannig að ef einhverjir hér eru á E39 M5 og vilja fá ódýra hressingu í bílinn þá er group buy linkurinn hér: http://www.m5board.com/vbulletin/showthread.php?t=57375

Mæli eindregið með gaurnum sem stendur fyrir þessu group buy, hann er mjög þægilegur í viðskiptum.
Last edited by bimmer on Thu 06. Oct 2005 08:19, edited 2 times in total.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 31 guests