Mér bauðst þessi bíll á góðum kjörum frá B&L og ákvað að skella mér hann. Þetta var svosem ekkert planað en þetta hefur verið einn af mínum draumabílum lengi og stóðst ég ekki freistinguna.
Bíllinn er fyrst skráður 22.09.2000 og var fluttur inn af B&L. Ég er þriðji eigandi. Hann er keyrður 113.000 og er mjög þéttur og fínn.
Vélin er 2926cc línu sexa með 184 hestöfl og 390 NM tog.
Helstu hlutir:
Cosmosschwarz Metallic
Beinskiptur
Svart leður
16" álfelgur
Gler topplúga
Þokuljós
Loftkæling
Spólvörn
Cruise control
Business CD
Það er alveg draumur að keyra hann, endalaust tog í öllum gírum. Ég skrapp aðeins útur bænum og bíllinn er bara þægilegur í langkeyrslu, ekkert að skipta niður til að taka frammúr, síðan setti ég bara cruisið á og sveif áfram.
Svo er eyðslan auðvitað stærsti plúsinn við diesel, tölvan segir 8.6L á hundraðið sem ég held að sé nokkuð nákvæmt. Ég hef ekki mælt ennþá enda bara keyrt 450km síðan ég fékk hann, ennþá um hálfur tankur eftir
Næst á dragskrá er að sprauta húddið enda er það nokkuð steinbarið. Síðan er það facelift pakkinn, þ.e. Angel eyes ljós að framan og Celis led ljós að aftan, með hvítum stefnuljósum auðvitað. Líklega fæ ég mér líka Xenon en á eftir að skoða það aðeins. Síðan er ég að skoða tuning möguleika en er ekki alveg viss hvað ég geri í þeim málum.
Nýtt 25.10.06
Ég er búinn að gera flest allt sem ég var að pæla í þegar ég fékk bílinn.
Ég keypti facelift pakkann í TB og Dr.E31 og Svezel hjálpuðu mér að skipta um ljósin.
Nonnivett sprautaði fyrir mig húddið og lip spoilerinn, sem Sæmi reddaði.
Síðan var Bæring að selja original M5 felgur á svo góðu verði að ég stóðst ekki mátið og skellti mér á þær.
