Sælir.
Ætla að byrja að þakka fyrir hlýleg orð um bílinn og biðjast velvirðingar á að hafa sett hann í bílar meðlima, ég bara áttaði mig ekki á þessu.
Ástæðan fyrir því að mig langar líka að vera á þessu spjalli er sú að ég hef ekkert minni áhuga né álit á BMW og langar gríðarlega í þannig tæki seinna meir, en ástæðan fyrir því að ég fékk mér Benz í þetta skiptið er sú að ekki var í boði sambærilegur BMW fyrir ca 1,5milljón.
Í bílnum er 3.2 lítra línusexa sem er að skila 220hö við 5500 sn/min og 310nm við 3750 sn/min. Uppgefin tími frá 0-100 km/klst er 7,8 sek.
Bíllinn er líka þokkalega vel búinn m.a. loftkæling, læst drif, rafmagn í sætum með minni, loftstillt sæti, rafmagnsgardína í afturrúðu, cruise control og síðan eitthvað fleira sem ég nenni ekki að telja upp.


