Einn nýr.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby BMWRLZ » Sun 31. Jul 2005 12:28

Sælir.

Ætla að byrja að þakka fyrir hlýleg orð um bílinn og biðjast velvirðingar á að hafa sett hann í bílar meðlima, ég bara áttaði mig ekki á þessu.

Ástæðan fyrir því að mig langar líka að vera á þessu spjalli er sú að ég hef ekkert minni áhuga né álit á BMW og langar gríðarlega í þannig tæki seinna meir, en ástæðan fyrir því að ég fékk mér Benz í þetta skiptið er sú að ekki var í boði sambærilegur BMW fyrir ca 1,5milljón.

Í bílnum er 3.2 lítra línusexa sem er að skila 220hö við 5500 sn/min og 310nm við 3750 sn/min. Uppgefin tími frá 0-100 km/klst er 7,8 sek.

Bíllinn er líka þokkalega vel búinn m.a. loftkæling, læst drif, rafmagn í sætum með minni, loftstillt sæti, rafmagnsgardína í afturrúðu, cruise control og síðan eitthvað fleira sem ég nenni ekki að telja upp.
Farnir:
W124 320CE
E38 750
E39 530D
E30 325
E36 320
User avatar
BMWRLZ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 438
Joined: Sun 15. Feb 2004 20:59

Postby gstuning » Sun 31. Jul 2005 13:05

Þú hlýtur að hafa verið bílaáhugamaður í langann tíma til að velja svona bíl þegar þú ert 17ára.

Ég virði allra manna val á bílum ef valið er meðvitað og draumabílinn valinn
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Schulii » Sun 31. Jul 2005 13:20

Sammála Gunna. Þetta er hörkubíll sem þú átt!

Ég var á E21 320 og svo E30 323i þegar ég var 17 ára 8)

En þetta er rosa vel búinn bíll og örugglega mjög gaman að keyra´nn,
en þú ættir að geta fengið ansi geggjaðann bimma fyrir 1.5 kúlur samt ef þú hefðir hug á því. Ekki að þetta sé slæmur kostur!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby BMWRLZ » Sun 31. Jul 2005 13:42

Þú hlýtur að hafa verið bílaáhugamaður í langann tíma til að velja svona bíl þegar þú ert 17ára.



Já, auðvitað er maður búinn að vera með áhuga á bílum í MÖRG ár, ég byrjaði nú á því að fá mér 230E Benz 2 mánuðum áður en ég fékk bílpróf, fékk síðan bílpróf í lok ágúst og keypti síðan þennan í desember á síðasta ári þegar ég var löngu orðin leiður á 230 bílnum, enda alveg kraftlaus sá bíll.

Þið megið síðan alveg segja mér frá einhverjum skemmtilegum BMW-um á svipuðu verði og með álíka performance og Benzinn. Og auðvitað má hann ekki vera keyrður meira en Benzinn, en hann er keyrður tæplega 150þús km.
Farnir:
W124 320CE
E38 750
E39 530D
E30 325
E36 320
User avatar
BMWRLZ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 438
Joined: Sun 15. Feb 2004 20:59

Postby Svezel » Sun 31. Jul 2005 13:50

virkilega flottur bíll hjá þér og einstaklega "þroskað" val fyrir 17ára einstakling :)

ég man hvað ég slefaði mikið yfir þessum bílum hér áður fyrr áður en maður fékk prófið
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Logi » Sun 31. Jul 2005 14:15

Flottur bíll og örugglega mjög skemmtilegur!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Jss » Sun 31. Jul 2005 14:48

f50 wrote:Þið megið síðan alveg segja mér frá einhverjum skemmtilegum BMW-um á svipuðu verði og með álíka performance og Benzinn. Og auðvitað má hann ekki vera keyrður meira en Benzinn, en hann er keyrður tæplega 150þús km.


Fyrst þú minnist á það þá er hér einn góður. ;)

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=9331
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby zazou » Sun 31. Jul 2005 14:56

Töff græja.
Benz er samt dáldið fyrir gömlu karlana, BMW er fyrir þá sem elska að keyra.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Angelic0- » Sun 31. Jul 2005 15:45

zazou wrote:Töff græja.
Benz er samt dáldið fyrir gömlu karlana, BMW er fyrir þá sem elska að keyra.


[-X

Draumabíllinn minn er einmitt MB 300CE, þá silfurgrár og á 18" AMG rimmum, en ég hugsa einmitt að AMG rimmur undir 320 bílinn þinn væru draumur ;)
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby BMWRLZ » Sun 31. Jul 2005 15:55

Ég gat nú valið hvort ég vildi AMG Monobloc look felgur (eins og þær sem þú ert að tala um), eða þessar replikur af AMG SLK style 1. Finnst þessar felgur bara fara bílnum mun betur, hinsvegar fara þessar felgur ekki 4 dyra bílnum vel.


P.S. Veit einhver hvað þessir bílar eru að fara kvartmíluna á, eða þá hvar ég get nálgast þær upplýsingar.
Farnir:
W124 320CE
E38 750
E39 530D
E30 325
E36 320
User avatar
BMWRLZ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 438
Joined: Sun 15. Feb 2004 20:59

Postby Benzari » Sun 31. Jul 2005 15:58

ca. 16,2
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Jón Ragnar » Sun 31. Jul 2005 17:27

Svalur bíll 8)

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby Twincam » Sun 31. Jul 2005 17:47

gríðarlega fallegur þessi hjá þér.... uppáhalds lita-comboið mitt á Benz..

og blessaður vertu ekkert að skipta Benzinum út fyrir BMW, vita það allir að Benz kemur í fyrsta sæti, svo BMW :wink:
Rúnar P
662 5272

Druslusafnið núna:
BMW e46
Suzuki Baleno
Honda CRF250R
Pocket Bike og fleira misgáfulegt dót...
User avatar
Twincam
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2466
Joined: Wed 04. Feb 2004 16:29
Location: Playboy Mansion, Hafnarfjörður

Postby Angelic0- » Sun 31. Jul 2005 17:51

DRAUMA DRAUMA DRAUMA DRAUMURINN væri 190E EVO 2.5 bíllinn :D

Shit nice... fínt power.. og flottasta look ever :D

Langar í slíkt tæki ;)
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Twincam » Sun 31. Jul 2005 17:54

Angelic0- wrote:DRAUMA DRAUMA DRAUMA DRAUMURINN væri 190E EVO 2.5 bíllinn :D

Shit nice... fínt power.. og flottasta look ever :D

Langar í slíkt tæki ;)


ekki einn um það kallinn.. en það yrði að vera EVO II bíllinn... þó ég myndi svo sem sætta mig við bara EVO bílinn 8)
Rúnar P
662 5272

Druslusafnið núna:
BMW e46
Suzuki Baleno
Honda CRF250R
Pocket Bike og fleira misgáfulegt dót...
User avatar
Twincam
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2466
Joined: Wed 04. Feb 2004 16:29
Location: Playboy Mansion, Hafnarfjörður

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 43 guests