nettenging

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

nettenging

Postby ta » Sat 21. May 2005 00:48

ég er með modemtengingu heima.
ég er á leiðinni að fá mér meira.
hafiði ráðleggingar fyrir mig.
btnet sýnist mér er með besta verðið.
er einhver með reynslu frá þeim.
þráðlaust, unlimited, 4mb, á 3900.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby Djofullinn » Sat 21. May 2005 01:36

Ég mæli með Hive Max.
Búinn að vera með Hive síðan þeir byrjuðu og jújú það laggaði að sjálfsögðu til að byrja með. Svipað og þegar ADSL kom fyrst hjá Símanum. Eða þegar Íslandssíminn byrjaði.
En í dag er það orðið mjög gott.
En til þess að fullnýta þennan hraða þurfa símalínurnar heima hjá þér að vera í lagi.

Verð til almennings á Hive Max er 5990 kr.
12 mb. Ótakmarkað dl.
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby moog » Sat 21. May 2005 02:31

Ég mæli með að þú kynnir þér þetta mjög vel.

Hive eru með 12 mánaða skuldbindingu sem þýðir að ef þú hættir við þarft þú að greiða upp tímabilið sem þú skuldbindur þig (sem gerir auglýsingar þeirra nokkuð skondnar), sömuleiðis Síminn.
OgVodafone eru með Og1 sem kemur sér vel fyrir þá sem eru með heimasíma og gsm í áskrift og adsl hjá þeim (semsagt allan pakkann) og þar eru 2 adsl tengingur í boði (4Mbit og 1Gb og 6Mbit og ótakmarkað niðurhal) á 3.990 og 4.990 og það er ekki háð neinni skuldbindingu.

Þekki ekki nógu vel með BT-net (það er samt undir First Mile sem er einnig að þjónusta Hive). Gallinn við First Mile er að þeir eru einungis með Cantat strenginn meðan Landsíminn og OgVodafone eru með bæði Cantat og FarIce sem tryggir betra utanlandssamband.

Ég hef verið hjá OgVodafone alla tíð frá því ég fékk mér adsl og ég mæli hiklaust með þeim.

Þetta er svona gróft mat en ég er náttúrulega hlutdrægari OgVodafone miðað við mína reynslu við þá.
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Sat 21. May 2005 02:51

Ég er með ADSL hjá Vodafone. Mér líkar mjög vel við tenginguna
og einnig við þjónustuna. Ef eitthvað kemur uppá þá tekur MJÖG
stuttan tíma að bæta úr því.

Ég hef einmitt verið að pæla mikið í þessum Hive auglýsingum þar
sem þeir eru að tala um að vera laus. Ég hef einmitt rekið augun í
auglýsingar frá þeim þar sem þeir krefjast einnig 12 mán skuldbindingar
eins og allir hinir.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby pallorri » Sat 21. May 2005 05:37

Já sælir.
Ég er búinn að vera með aDSL hjá OgVodafone (áður Íslandssíma) í rúmlega þrjú ár og tengingin hefur ávallt verið stabíl en svo byrjaði tengingin allt í einu að hökta og það var þónokkuð mikið packetloss á tímabili, en það lagaðist með tímanum. Ég bý að vísu fyrir utan þjónustusvæði OgVodafone og þessvegna er ég með leigulínu frá landssímanum þannig að ég get ekki fengið Og1 þótt svo að ég sé bæði með heimasíma og GSM hjá þeim. Það finnst mér mjög súrt afþví að ég browsa frekar mikið utanlands og það telst hratt upp. Annars er ég alveg svona semi sáttur með þjónustuna hjá þeim. Skárri þjónusta en Síminn held ég persónulega, þótt ég sé alls ekki að setja út á Símann að neinu leyti. Það er ekki ennþá búið að leggja Hive þar sem ég á heima og það hindrar mig í því að skipta.

Álftanesið er samt paradís fyrir því :)

Kveðja, trapt
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby Jón Ragnar » Sat 21. May 2005 09:13

ogvodafone rokkar finnst mér :D

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby Kristjan » Sat 21. May 2005 14:50

Fuck ADSL, nú er tími til kominn að fólk fari að skoða SDSL og HDSL jafnvel ef menn eru með ennþá meiri kröfur.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Einsii » Sat 21. May 2005 15:17

Það var nú skipt út hdsl línu fyrir adsl í vinnuni um daginn, hdslið var alltaf með vesen!
en svo held ég að það skipti rosaleega litlu máli hvert maður fer í sona adsl þjónustu.. allt eins.
En svo er aftur annað mál að dl er ekki unlimited hjá þeim.. það er þak bara mikklu mikklu hærra en áður og þá fara þeir að rukka á mb.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Svezel » Sat 21. May 2005 16:28

Gallinn við Og1 er að þetta ótakmarkaða niðurhal hjá þeim er bara engan vegin ótakmarkað...það verður allt crazy við c.a. 50GB/mán og það er nú bara í mesta lagi hálfsmánaðar skammtur hjá alvöru netfíklum :roll:

Ég segi Btnet eða Hive, þeir stressa sig ekki á miklu gagnamagni og bjóða besta verðið.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 46 guests