


fart wrote:Þetta hefur oft komið fyrir.
En mér finnst þetta fara meira eftir bílum en mínu ástandi.
.
fart wrote:T.d. sótti ég nýlegan nissan patrol í keflavík fyrir stuttu síðan, ég var vel sofin og alles, en mér bara tókst ómögulega að halda mér vakandi. Sennilega var það hljóðið í vélinni eða það að bílinn var á soldið grófum dekkjum.

Schnitzerinn wrote:Strákur sem ég þekki sofnaði undir stýri á Nissan Micru og hann keyrði aftaná stóran trailer og kastaðist útaf veginum og við það blésu loftpúðarnir út og hann vaknaði við hvellinn í þeim. Hann vissi ekkert hvað var að gerast og auðvitað krossbrá honum og hann væri ekki lifandi ef hann hefði ekki verið í belti. Bíllinn fór í mauk og var gjörónýtur. Þannig að reynum að vera vakandi í umferðinni

gstuning wrote:Ég verð að vera sammála því að það fer líka aðeins eftir hvernig bílinn er,
ef það er engin breyting í hljóðunum eða eitthvað svoleiðis í bílnum þá slaknar maður svo mikið niður,

316i wrote:hef ekki dottað undir stíri get ekki sofnað of mikill sársauki í löppinni!!
er með frekar langar lappir og mikla leggi so ég er alltaf með sköflunginn utani sem er svo vont að ég sofna ekki!
Users browsing this forum: No registered users and 34 guests