BINI!

Hér skal spjalla um BMW.

BINI!

Postby bebecar » Thu 10. Oct 2002 09:14

Nú var ég að velta fyrir mér hvort ekki væri flott að bjóða þeim sem eiga BINI (BMW MINI, fyrir þá sem ekki vita) með í klúbbinn???

Þetta eru smartir bílar og hannaðir af BMW og þó þeir hafi ekki merkið á húddinu þá gæti verið gaman af því að hafa þá með.

Eins vildi ég minna á að ef einhver þekkir einhvern sem á BMW mótorhjól að fá þá endilega með í klúbbinn líka.

Það er planinu hjá mér að eignast BMW mótorhjól sem fyrst (gamalt auðvitað) og þá myndi maður að sjálfsögðu mæta á samkomur.

Setjið nú út klærnar og fáið fleiri meðlimi!

Kveðja,
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Thu 10. Oct 2002 13:03

mér finnst það helvíti snjallt! ég veit immitt um einn sem á mini cooper S, ljós bláan að lit. kannski maður bjóði honum að mæta næst þegar við hittumst. humm já talandi um það, hvenær eigum við að hittast næst ?? verðum við ekki að fara að gera það ansi bráðlega ?
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bebecar » Thu 10. Oct 2002 13:21

Jú, blessaður reyndu að góma kauða! Mig blóðlangar að skoða bílinn hans, einn af fáum nýjum bílum sem ég er hrifinn af!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Stefan325i » Thu 10. Oct 2002 18:39

Ég er sammála þetta er einn af fáu nýju bílunum sem eithvað varið er í

en er ekki bíllin seldur sem Bmw mini ?? eg hef heyrt það
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby bebecar » Thu 10. Oct 2002 21:28

Allavega er hægt að sérpanta hann hjá B&L.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 17 guests