Ég er búinn að brosa mikið eftir að hafa lesið þessi ummæli hérna. Ég var ekki búinn að sjá þetta áður.
Ég er eiginlega farinn að sjá að það er svolítið skrýtið með þessar felgur. Annað hvort finnst mönnum þær ROSALEGA töff.. eða þeir bara fíla þær ekki. Það er ekkert svona .. allt í lagi .. eins og með margar aðrar.
En svo ég svari nú spurningunni, þá eru þessar felgur það sem ég hafði hugsað mér að selja bílinn á (vegna þess að mér fannst svo flott að hafa hann á original felgunum sem fara honum að mínu mati afar vel, lagði á mig stóran krók til að versla þær úti). En ef kaupandinn vill alls ekki hafa þær, þá get ég reddað öðrum felgum, allt bara samningsatriði.
Strjúkum kviðinn elskum friðinn,


