Er þetta ekki bara eitthvað rugl sem verður aldrei af veruleika. Margt annað sem mætti laga áður en keyptir yrði hraðatakmarkarar í alla bíla.
Menn eru vitsmunaverur og það á að vera hægt að kenna þeim hluti, bara nota réttar aðferðir. Þetta virðist umferðarstofa ekki átta sig á með myglaðan gaur í fararbroddi (Sigurð Helgason) sem þylur alltaf upp sömu rulluna í útvarpinu. Dæmigerður gaur sem gerir lítið annað en að fá laun frá ríkinu. Kasta endalausum fjármunum í auglýsingar sem eru ýmist bannaðar eða valda hneykslun og blaðaskrifum. Hvergi jafn margar hraðahindranir þar sem ég hef keyrt um eins og á Íslandi. Víða í sveitum þá eru notaðar rafmagnsgirðingar til að halda búfénaði innan girðinga, dýrin eru ekki jafn greind og mennirnir en þau læra ef þau meiða sig að láta girðinguna vera. Ökumenn læra að fara ekki of hratt yfir hraðahindranir því það er óþægilegt en þeir eiga að keyra á réttum hraða því sá hraði er settur m.v. aðstæður. Allir keyra 10km yfir hámarkshraða því þeir vita að þeir verða ekki teknir og álíka hugsunarháttur. Náttúrlega ástæður fyrir hámarkshraða. Löggan liggur í leyni á kvöldin og þá þarf að passa sig að fara ekki of hratt þegar engin umferð er en á daginn þá eru þeir örsjaldan að mæla því þeir þyrftu sennilega að taka alla!
Persónlugea finnst mér þessi hugmynd vera algjört kjaftæði.
Hvað deyja margir í umferðinni á ári ef ekki eru teknir með þeir sem eru ekki fullur, ekki í beltum og ekki með bíla öryggisþætti bílsins í lagi. Það væri áhugavert fyrir menn eins og mig að fá að vita það. Kannski er umferðin ekki jafn hættuleg fyrir þá aðila sem fylla þennan hóp Þráin væri að öllum líkindum lifandi ef hann væri í þessum hópi.
Ég hef aldrei ollið tjóni og 1x verið tekinn af löggunni á 7 árum þannig þetta er e-r biturleiki
