ok, hér kemur pitchið..
Við vorum þarna að leika okkur um daginn ég og Þórður á hvítu Integrunni og svo fórum við að spjalla við eigandann að brautinni.
Málið er að brautin er notuð allt of lítið, hann sagðist hafa reynt að fá menn til að koma á bílum en lítið gerst, eitt og eitt get-together en svo búið, skv. honum þá er brautin komin í einhverja gjörgæslu, þ.e að uppi eru hugmyndir að rífa hana ef ekkert fer að gerast, þ.e. að menn fari ekki að nota þetta meira.. og það má ekki gerast að okkar áliti,
þá datt okkur í hug að hafa smá æfingu, hóa liði saman og bara leika okkur, engin keppni, ekkert vesen bara hittast og eiga gott kvöld með gúmmífýlu og bensínlykt... (ekki ónýtt) byrja 1 sinni í mánuði kannski og sjá hvernig menn taka í þetta, ef menn eru heitir þá getum við alveg gert þetta oftar !!! þetta með fimmtudagskvöldin er útpælt, föstudags og laugardagskvöld eru erfið, margir að djamma, jafnvel fer lið að mæta þarna fullt og fleiri leiðindi sem henta ekki á opna braut þar sem bílar eru að reisa, sunnudagskvöld eru óhentug þar sem fjölskyldufólk vill oftast eyða þeim kvöldum saman, matarboð osfrv.. en fimmtudagskvöldin eru einhvernvegin fríkvöld hjá flestum, (það er of erfitt að fá brautina á daginn, því þá er aðal tekjulindin þeirra)
Við erum ekkert að pæla í að græða eitt eða neitt á þessu, bara hittast, sjá bílana og sjá menn prófa þá, eini sem fær eitthvað er eigandinn að brautinni, við þurfum bara að passa að missa bílana ekki út fyrir brautina, það skemmir gras sem er verið að reyna að rækta upp þarna og getur einnig skemmt bílana.
Menn eru þarna algjörlega á eigin ábyrgð, við þurfum bara að standa allir saman um að halda þessu safe.. og svo er bara að mæta !!
