Djofullinn wrote:Hverju ertu búinn að breyta síðan þá?
Það sem búið er að breyta er:
Flækjur og 3 tommu púst.
Knastás sem er aðeins heitari.
Tölvukubbur sem á að gefa einhver hestöfl og leyfa vélinni að snúast upp í 7000.
Vandamálið er að núna fær vélinn of mikið bensín á snúning ca. 5000 og yfir.
Þarf að reyna að stilla það úr eða að kaupa Piggy Back til að geta stillt það.
Ef einhver er með aðra hugmynd um hvernig hægt er að laga þetta þá væri gaman að heyra það.



