gstuning wrote: ... Og það mun enginn eiga 2002 árgerð af Passat VR6 árið 2022, því að reka þann bíl verður fáránlega dýrt, þá þýðir ekkert að rúnta niður í umboð til að láta lesa úr honum og ætla að gera við þetta sjálfur, alltof dýrt, og ef maður er ekki þvílíkur DIY týpan með VW Tölvu í skúrnum til að bilanagreina þá þýðir það ekkert,
Þetta er eins og maður segir með gömlu amerískur, eina verkfærið sem þarf er hamar og svo lemur maður bara ofaní húddið þangað til að vélin lagast, En í dag, þá þarf bara plug´n play sem kostar shitload, og svo er miklu erfiðara að fá viðgerða upplýsingar um nýja bíla en gamla, veit einhver hvernig á að gera við lausagangstruflanir í nýjum S-600, en ´78 Corvettu???? Frekar vettan því að það er miklu einfaldara ...
Málið er bara að það eru svo fáir sem nenna að fara með bílinn sinn inn í bílskúr með hamar og "massa" þetta. Ég hef ekki nokkurn áhuga á því og hvað þá meirihluti almennings? Og þegar gstuning talar um að það sé miklu einfaldara fyrir hann að gera við Corvettu þá er MIKILL meirihluti almennings sem hvorki kann né hefur áhuga að gera við Corvettu eða aðra bíla.
(Ó)Venjulega fólkið vill bara keyra bílana sína, að öðru leyti hefur það engan áhuga á þeim.
Spurningin er bara eins og iar segir varðandi ábyrgðir framleiðandanna. Ef þeir geta skotist undan ábyrgð þá er það ekki jákvætt, en það mun alls ekkert endilega gerast. Ég sé þá þróun ekki vera að gerast. Til þess er of samkeppnin of mikil, ímynd of sterk og bílaverkalýðsfélög sterk. Ég efast um að mikil breyting verði á venjulegri 3 eða 4 ára ábyrgð. Það kostar að gera við bíla og mér finnst hið besta mál að eigendur kunna ekki að gera við bílana heldur bara láta mennina með tækin og tólin sjá um þetta. Þá verða þeir líka að hafa reynsluna, þekkinguna og réttu tólin.
Er þetta góð þróun? Að vissu leyti já og að vissu leyti nei. Mér finnst samt kostirnar vega þyngra svona fyrir (ó)venjulega fólkið sem vill öryggi og vill sem minnst vita af bílnum sínum.
Þið eruð óánægðir með þessa þróun sem stefnir í sífellt ópersónulegri bíla og ég skil það vel, en málið er að fyrir augum meirihluta almennings þá eru bílar bara farartæki sem verða aldrei persónulegir, því þeir eru ekki persónur. Ég er nú ekki alveg í þeim hóp, enda erum myndirnar um Herbie (Love Bug) uppáhaldsmyndirnar mínar.
Það hlítur einhver að leynast þarna sem er sammála mér??
