GPS Navigation

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

GPS Navigation

Postby Thrullerinn » Mon 24. Jan 2005 13:44

Ég er að velta fyrir mér hvort einhver hafi notað gps navigation sem var
svona "on dash" þ.e. bara unit til að leggja á mælaborðið.

Allar ábendingar vel þegnar :)

Þröstur
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby gstuning » Mon 24. Jan 2005 13:54

Ég notaði einu sinni eldgamalt tæki frá Liege til Frankfurt, það gékk svosem vel en hefði verið betra að skoða kort betur :)

þar sem að þetta hafði enga vegi eða neitt svoleiðis og ég var 7tíma að komast 400km , þegar ég keyrði alltaf yfir 150kmh loks þegar ég komst til þýskalands ;)

Djöfull var gamann ,, væri svo til að fara til Germany og keyra bara autobahnið á milli bæja ,, vera í einum bæ, keyra heillangt og stoppa yfir nótt og skoða sig um daginn eftir , aðra nótt og rúlla svo í annan bæ daginn eftir það :)
og hafa svona 500km lágmark á milli bæja
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Bjarki » Mon 24. Jan 2005 14:30

Þetta var aðeins rætt fyrir nokkru:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=8557
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Thrullerinn » Mon 24. Jan 2005 18:49

Bjarki wrote:Þetta var aðeins rætt fyrir nokkru:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=8557


Takk, var efins um þetta innlegg, hafði á tilfinningunni að þetta hefði
verið rætt.. :roll:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby jth » Mon 24. Jan 2005 19:14

Ég hef reynslu af bæði PDA og Laptop tengdum við GPS. GPS búnaðurinn var frá Pharos, tengdur í compact flash slot á bæði PDA og svo CF-adapter á Laptop.

PDA:
Notaðist við Ostia hugbúnaðinn sem fylgir Pharos. Nánast alltaf réttar leiðbeiningar, góðar uppfærslur á hugbúnaðinum - en PDAinn (Dell Axim 400MHz) var í raun of hægur f.þetta allt saman.

Laptop:
Notaði Microsoft Streets and Trips. Hér var ekki hægt að sjá "Turn by turn" leiðbeiningar / leiðbeiningar í rauntíma sem er mjög hjálplegt! Ekkert vandamál með hraða hér - en þegar laptop er kominn í framsætið er farið að þrengja svolítið að farþega. Engin leið var að láta þetta "falla inn í" cockpittið, og alltaf töluvert maus að taka með spennubreyti, starta öllu saman, taka tölvu úr bílnum inn í hús etc etc.

Þrátt fyrir að sniðugt sé að vera með PDA sem býr yfir GPS og getur hjálpað manni með staðsetningar, þá er það mín skoðun að ekkert geti komið í staðinn fyrir tæki sem er "hreinræktað" í hlutverkið.

Kostir við tileinkað GPS tæki:
Fyrirferðalítið (oftast)
Hraðvirkt
Hægt að festa í mælaborð, jafnvel rúðu
Oft með meiri möguleika ( raddleiðbeiningar, leiðbeiningar í rauntíma etc)

Ef þú ert að spá í þetta fyrir akstur í Evrópu, þá myndi ég spá vel í að fá mér "hreinræktað" GPS tæki. Við fórum í skíðaferð frá Þýskalandi yfir til Austurríkis fyrir 3 árum, og þökk sé miklu tuði í okkur og plássleysi í 318i (sem er önnur saga að segja frá ;) )bíl fengum við Legacy með GPS búnaði. Skemmst er að segja frá að GPS tækið gjörsamlega bjargaði okkur. Svo mikið reyndar að við tókum aldrei upp kort :D

Á roadfly.org hefur mest verið talað um Magellan GPS tæki, og láta þeir vel af þeim. Hérna er útgáfa með 10GB HDD, og sérstaklega hugsuð f.Evrópu.
http://www.magellangps.com/en/products/product.asp?PRODID=1010

Leyfðu okkur að fylgjast með hvaða græju þú endar með ;)
Jóhannes
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby Thrullerinn » Tue 25. Jan 2005 22:39

Ég er eiginlega búinn að ákveða að kaupa TomTom go, þetta virðist vera
snilldartæki, fyrir 400 pund.

Ég er búinn að lesa nokkur "review" um þetta tæki og líst vel á, nú er
bara að athuga hvort þetta sé til hér á landi sem mér sýnist ekki.

review á amazon:
http://www.amazon.co.uk/exec/obidos/ASI ... 57-6832617

Einhver á leiðinni til útlanda ? :wink:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby jth » Tue 25. Jan 2005 23:16

Flott græja, hljómar mjög vel út frá amazon reviewunum.

Auðvitað erfitt að dæma það án þess að sjá tækið í action, en mér finnst grafíkin skýr og fín:
Image

Kostar rétt rúman $700 kall hér úti - alveg er ég sannfærður um að þú getir sannfært einhvern til að skreppa í helgarferð til DC með þér og pikka upp eitt svona stykki ;)
Jóhannes
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby Thrullerinn » Tue 25. Jan 2005 23:30

jth wrote:Flott græja, hljómar mjög vel út frá amazon reviewunum.

Auðvitað erfitt að dæma það án þess að sjá tækið í action, en mér finnst grafíkin skýr og fín:
Image

Kostar rétt rúman $700 kall hér úti - alveg er ég sannfærður um að þú getir sannfært einhvern til að skreppa í helgarferð til DC með þér og pikka upp eitt svona stykki ;)


Alveg er ég sannfærður um það sé hið minnsta mál að "einhver"
hefði ekkert á móti að fara í helgarferð til DC. :D

Ég fer að vinna í málinu ;)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 46 guests