lasinn 745 í fréttablaðinu í dag

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

Postby Geirinn » Sun 03. Sep 2006 15:11

Tommi Camaro wrote:
Jss wrote:Annars finnst mér setningin sem rúmfatalagerinn er með uppá vegg hjá sér ansi góð.

Ef þú ert ánægð(ur) með okkur láttu aðra vita, ef þú ert óánægð(ur) láttu okkur vita. ;) (ekki viss um að þetta sé orðrétt en þið náið sjálfsagt "pointinu".)

Ég geri það , :)
Og vill endailega benda mönnum á það Að bogl er eina umboðið sem á í gengisvandar mál að stríða , og ég get líka lof því að álagning hefu hækkað hja bogl um ca 25-50% fá því í jan á þessu ári
heimildirnar er skýrar hjá mér.
ég fékk verð í spyrnu í jan upp ca 90 kall hun er um 150 þús núna.
ég er ekki að atast í þjónustunni þarna hún er 100% og það skiftir eingu máli við hvern ég tala við í varahlutum það er allt 100% þar


Amen brotha.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby hlynurst » Sun 03. Sep 2006 18:35

Jss wrote:Plús það náttúrulega að þetta er ekki sama vara. ;)


Ég hef þá eina spurningu varðandi þetta þar sem ég er með einn hlut (á eflaust við fleiri) sem mér finnst ekki eiga við þetta svar.

Þar sem mér vantaði kveikjulok um daginn kannaði ég verðið hjá bæði B&L og TB, kveikjulokið var næstum því 50% dýrara hjá B&L heldur en hjá TB. Kveikjulokið sem ég keypti hjá TB var frá Bosch og ég tel mig hafa verið að kaupa nákvæmlega sömu vöru hjá TB og hjá B&L í þessu tilviki nema kannski að eini munurinn var að kveikjulokið sem ég keypti var ekki merkt BMW heldur Bosch. Getur það ekki passað?

Mér finnst líka allt í lagi að fólk segi sína skoðun á því hvernig þjónustan í viðkomandi fyrirtækjum er til að gefa öðrum hugmynd um hvernig þjónustu viðkomandi á eftir að fá hjá þeim. En þó ber að varast að fara strax með þetta á opin spjallborð og drulla yfir viðkomandi fyrirtæki án þess að hafa reynt að fá skýringu á þeirri þjónustu sem viðkomandi aðili hefur fengið hjá því fyrirtæki sem hann hefur verslað við.

Ég hef fengið mjög góða þjónustu hjá B&L og hef ekkert út á þá að setja nema varahlutaverð en eins og hefur áður komið fram í þessum þræði verða menn að átta sig á því að BMW eru dýrir bílar og maður verður að reikna með að rekstrarkostnaður á þeim er ekki ódýr. Maður borgar fyrir gæðin.

:)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby íbbi_ » Sun 03. Sep 2006 18:46

það sem fólk spáir líka að því virðist aldrei í.. er að umboðin eru háð verðlagningu framleiðanda, og framleiðendurnir (í þessu tilfelli bmw) eru yfirleitt miklu dýrari heldur en flestir´sjálfstæðir birgjar..

hef séð þetta oft svart á hvítu þar sem ég vinn í benz umboði sem er líka bosch umboðið... verðmunurinn getur verið gífurlegur, en svo eru stundum hlutir eins og startarar og flr niðurgreiddir af framleiðanda og því ódýrari frá t.d benz heldur en beint frá bosch
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Previous

Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests

cron