Þýskan e-ð að vefjast fyrir mér!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Þýskan e-ð að vefjast fyrir mér!

Postby hemmih » Thu 19. Jun 2008 22:00

Sælir piltar/stúlkur.

Ég er með 735 e38 bíl og var að skipta um vatnskassa í TB um daginn.
Núna þegar ég set bílinn í gang kemur ennþá Watnhvasser fullen eða e-ð .. og svo kemur af og til kulhwarest prufen eða e-ð álíka.
Þar sem ég er ekki sá sleipasti í þýskunni og veit lítið um þetta þá var ég að velta fyrir mér hvað væri í gangi.

Þetta kom líka áður en ég skipti um vatnskassa og þá fór hann að hita sig aðeins þannig ég skipti um hann og þá hefur hitamælirinn alveg verið stilltur (var gat á gamla kassanum). Ég er búinn að opna kassann og það er alveg nóg á honum. en þetta kulhwarest dæmi kemur bara þegar hann er kaldur, ef ég er búinn að keyra slatta og drep á honum og kveikji svo eftir smá stund kemur þetta ekki. Svona að meðal gáfuðum manni að vera þá ætti þetta að vera e-ð um vatnskassann og kælivökva.

Væri fint að fá að vita hvað þetta sé.
BMW 735 (til sölu)
M. Benz c200 (seldur)
hemmih
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 41
Joined: Thu 22. Nov 2007 19:37

Postby SteiniDJ » Thu 19. Jun 2008 22:30

Watnhvasser fullen


Þýðir þetta ekki Vatnskassi fullur?

kulhwarest prufen


Og þýðir þetta ekki prufun á kælivökva?

Ég samt ekki sleipur í þýskunni :)
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby Fjarki » Thu 19. Jun 2008 23:49

Ekki það að ég er ekki sleipur í þýskuni, en getur ekki verið að þú þurfir að lofttæma betur og það vanti smá kælivökva?? Þó það virðist ekki vera þegar þú opnar lokið.
Kristján
Fjarki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 300
Joined: Thu 11. Mar 2004 15:51

Postby baui » Wed 09. Jul 2008 23:31

Þú hefur nú eitthvað stafað þetta vitlaust, en ég er sammála öðrum svarendum að líklegt sé að þú þurfir að lofttæma kælikerfið.
baui
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 1
Joined: Fri 21. Jul 2006 13:02

Postby UnnarÓ » Thu 10. Jul 2008 01:25

Ef þú vilt breyta check control yfir á ensku, prófaðu þá að setja svissinn í „acc“ og haltu pinnanum hægra megin í mælaborðinu frekar lengi inni (8 sek eða svo) og þá ætti þetta að fara yfir í ensku.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby Bjarki » Thu 10. Jul 2008 10:24

Waschwasserstand => vantar rúðuvökva
Kühlwasserstand => vantar kælivökva

getur ekki verið að það vanti eitthvað smá á forðabúrið
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests