Þetta var sérstaklega mikið vandamál í dag. Það myndaðist móða á framrúðunni meðan ég hljóp rétt inn (5 mínútur í mesta lagi).
Kann einhver skil á þessu?
Þetta er vægast sagt að gera mig geðveikann, sérstaklega þegar móðan frýs . . .
fart wrote:Ef það kemur móða hjá þér þá er eitthvað að mistöðinni.
Flicker wrote:Ég myndi prófa að slökkva á miðstöðinni svona 10 sek áður en þú drepur á honum... það virkar hjá mér allavega... einnig heyrði ég að þú getur sett dagblöð eða einhvern anskotann í bílinn
---
Ef ég slekk á miðstöðinni rétt áður en ég drep á bílnum er eins og það lokist alveg fyrir hana einhvernvegin og þá kemur ekki eins mikil móða, það er eins og öll móðan komi úr miðstöðinni hjá mér alla vegana... reyndar er aldrei móða nema á framrúðunni hjá mér ef það er einhver móða á annað borð
Users browsing this forum: No registered users and 15 guests