95okt vs 98okt á minn bíl

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Jss » Wed 07. Jul 2004 08:42

fart wrote:Setti tank af V-Power ($$$$!!!!).

Ég er ekki frá því að bíllinn sé líflegri á lágum snúning, sérstaklega frá idle upp í svona 1500.

Fyrir utan það finnst mér vera öðruvísi sound á post 3500rpm. :D


Brill, ef þú athugar hvað menn segja/sögðu um notkun "high octane" bensíns á E39 M5 á M5board þá sérðu að þeir fengu svipuð viðbrögð. ;)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby fart » Wed 07. Jul 2004 08:50

það kom stundum svona "glamr" ef maður var að lulla í 1. eða 2. án þess að vera á gjöfinni þegar maður botnaði, það er ekki núna.

DSC var á overtime í morgun, meira að segja í 3. og 4. gír, að vísu rigning.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Dr. E31 » Wed 07. Jul 2004 16:58

fart wrote:það kom stundum svona "glamr" ef maður var að lulla í 1. eða 2. án þess að vera á gjöfinni þegar maður botnaði, það er ekki núna.

DSC var á overtime í morgun, meira að segja í 3. og 4. gír, að vísu rigning.


Prufaðu bara venjulegt 98oct til að finna muninn á 98oct og V-power.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby zazou » Wed 07. Jul 2004 20:40

fart wrote:Fyrir utan það finnst mér vera öðruvísi sound á post 3500rpm. :D


Ég hef upplifað sama hlut, minn bíll sándar öðru vísi á VPower.
Hef venjulega VPower á öðrum, 98 á hinum 8)
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby ses » Fri 16. Jul 2004 14:49

Þetta eru ótrúlega áhugaverðar pælingar.

(Og já, bíllinn minn er ford focus, með 2.0 zetec vél, 16 ventla, fjögurra strokka, 9.6:1 í þjöppu)

Ég gerði smá tilraun í vor með 98okt ólís bensín annarsvegar, og v-power.

á 98 þá idlaði bíllinn betur (hef verið að lenda í lausagangs veseni, sérstaklega ef hann er kaldur, mjög pirrandi, og aldrei á ég pening til að reyna að laga þetta almennilega). Og bíllinn var allur örlítið responsívari... Og hann komst lengra á lítrann, skv. útreikningum mínum var þetta ekki að kosta mig meira en kannski 500 krónum meira á mánuði, í mesta lagi.

Ég var svo ánægður að ég var þess fullviss um að v-power myndi vera ennþá betra og flottara, en á v-power þá tapaði ég responsinu algjörlega, eyðslan var alveg eins og á 98, nema lítrinn dýrari, og hann fór aftur idla verr!

Ég setti nú "bara" 2 tanka af v-power á hann, en það er víst skv. skeljungi mögulega ekki nóg til að vélin venjist v-power, og góðu áhrifin komi.... en guð minn góður, ég bara nennti ekki að keyra bílinn svona unresponsivan!

Einnig varðandi muninn á því hvernig bensín brennur eftir oktana fjölda, þá sagði mér bifvélavirki að hærra oktana bensín brynni heitar, og hann hefði séð bíla með skemmda ventlabotna útaf því að eigendurnir hefðu notað of hárra oktana bensín.... þetta minnir mig á annað sem ég heyrði þegar blýlausa bensínið var að verða standard, þá voru ekki allir bílar sem þoldu það (las í grein um ford CVH vélarnar að það eru bara CVH vélar framleiddar eftir 10/85 sem hafa 'hardened valve seats' og þola blýlaust?), veit einhver hver díllinn með það er?

Og enn annað, einnig var mér sagt að 98okt og 99okt bensín sé *ekki* blýlaust, og átti skýringin að vera sú að erfitt væri að gera svona hárra oktana blýlaust bensín?

Og smá trivia punktur í viðbót, fyrst ég er farinn að blaðra gegndarlaust, þá er 99oktan það minnsta sem v-power getur verið, þegar ég spurðist fyrir um það í vor vegna lélegrar frammistöðu þess hjá mér, fékk ég að vita að current oktanatalan var 100,5 ... Sem er náttúrulega *bara* gott fyrir túrbó mennina :-)
ses
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Fri 16. May 2003 13:43
Location: Reykjavík

Postby gdawg » Fri 16. Jul 2004 22:03

Og enn annað, einnig var mér sagt að 98okt og 99okt bensín sé *ekki* blýlaust, og átti skýringin að vera sú að erfitt væri að gera svona hárra oktana blýlaust bensín?


Það er hægt að búa til bensín með þessa oktan tölu og hærri án þess að nota blý, en efnin sem eru notuð til þess eru ekkert mikið skárri en blýið. Geta m.a. verið krabbameinsvaldandi, eða svo vildi einn kennarinn minn meina :!:

Ég veit líka til þess að það þurfti að herða ventlasætin á heddunum í mini fyrir blýlaust.
Gummi
´92 Mini [MR BIG]
´04 Jaguar X-Type
User avatar
gdawg
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 374
Joined: Mon 17. Mar 2003 17:29
Location: Cambridge

Postby sindrib » Sat 17. Jul 2004 14:00

ég veit bara á volvoinum hjá pabba gamla þá eyddi hann svkalega á 95 okt bensini (volvo 740gl árg 87) en á 98 var vinslan mikið betri og eyddi mikið minna,
svo á coltinum minum (colt 1,6 turbo)þá gekk hann bara ekkert á 95 okt.
enda stóð lika á lokinu 98 okt.
Merkur(sierra) xr4ti
User avatar
sindrib
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1099
Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Location: Sønderborg, Danmark

Postby Morpheus » Mon 19. Jul 2004 13:22

heyriði ég fór að lesa þennan þráð allveg í gegn og fór aðeins að pæla....

þjapan í mínum er 11:1 og ég er alltaf búinn að taka 95 okt bensín, er það bara algjör vitleysa, væri ég að græða mikið á 98+ okt bensíni
Morpheus
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 12
Joined: Wed 19. May 2004 16:26

Postby Maggi » Mon 19. Jul 2004 14:23

Ég rak augun í 100 okt bensín á bensínstöðinni hjá öskjuhlíð. Hefur einhver prófað það? Eða er það kannski blýbensín?
Maggi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 70
Joined: Tue 06. Jul 2004 13:58
Location: Mosfellsbæ

Postby bebecar » Mon 19. Jul 2004 14:53

Maggi wrote:Ég rak augun í 100 okt bensín á bensínstöðinni hjá öskjuhlíð. Hefur einhver prófað það? Eða er það kannski blýbensín?


Það er "flugvélabensín" og líklegast með blýi já - ef það er breiður stútur á dælunni þá er þetta blýbensín.

Eftir minni vitneskju þá eru nánast allir nýjir bílar með knock sensor.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Kristjan » Mon 19. Jul 2004 16:11

Það stendur a bensinlokinu hja mer að billinn taki 98 bly... eg nota alltaf 98 með blybæti....

ætli eg geti notað flugvelabensin og ætli eg fai eitthvað utur tvi?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Svezel » Mon 19. Jul 2004 16:16

Morpheus wrote:heyriði ég fór að lesa þennan þráð allveg í gegn og fór aðeins að pæla....

þjapan í mínum er 11:1 og ég er alltaf búinn að taka 95 okt bensín, er það bara algjör vitleysa, væri ég að græða mikið á 98+ okt bensíni


Þú ert með bíl sem myndi pottþétt gera betri hluti á 98+. Ég myndi taka 98+ á bílinn.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby bebecar » Mon 19. Jul 2004 16:18

Kristjan wrote:Það stendur a bensinlokinu hja mer að billinn taki 98 bly... eg nota alltaf 98 með blybæti....

ætli eg geti notað flugvelabensin og ætli eg fai eitthvað utur tvi?


Þú ættir nú ekki að þurfa að taka blýbæti - hann er aðeins fyrir mjög gamla bíla.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Dr. E31 » Mon 19. Jul 2004 19:32

bebecar wrote:
Kristjan wrote:Það stendur a bensinlokinu hja mer að billinn taki 98 bly... eg nota alltaf 98 með blybæti....

ætli eg geti notað flugvelabensin og ætli eg fai eitthvað utur tvi?


Þú ættir nú ekki að þurfa að taka blýbæti - hann er aðeins fyrir mjög gamla bíla.


Sammála.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby Kristjan » Mon 19. Jul 2004 21:34

Ég er búinn að nota hann í nokkra tanka... ég er varla að skemma nokkuð...
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests