
Djofullinn wrote:Ég viðurkenni að BMW bilar meira en margir bílar, það er líka eitthvað sem skiptir mig ENGU máli. Þetta eru einfaldlega gallar sem ég sætti mig við. Mér finnst kostirnir miklu meiri en gallarnir og ég er bara svo ástfanginn af BMW og mun alltaf verða. Ég á aldrei eftir að verða gaurinn sem kaupir sér nýja Toyotu á hverju ári, nei takk

BMW er ekkert mörgum árum á undan öllum öðrum í tækniþróun. Það er bara bull. BMW eru með tæknivæddari bíla heldur en meðalbíllinn, það er alveg ljóst, en þeir eru ekkert sér á báti og vitleysa að tala um BMW sem einhver mörg ár á undan öllum öðrum bílum.
Heizzi wrote:BMW er ekkert mörgum árum á undan öllum öðrum í tækniþróun. Það er bara bull. BMW eru með tæknivæddari bíla heldur en meðalbíllinn, það er alveg ljóst, en þeir eru ekkert sér á báti og vitleysa að tala um BMW sem einhver mörg ár á undan öllum öðrum bílum.
Ó gesturinn, I BEG TO DIFFER. Það eru dýrari tegundirnar á markaðinum sem ryðja brautina fyrir hina ódýrari bílaframleiðundur hvað tæknibúnað varðar. Til að mynda, ABS bremsur sem nú eru orðnar staðalbúnaður í flestum gerðum bíla...
Engine Check, það er eitthvað sem sást fyrst í dýrari bílunum, fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um þá er ég að tala um litla tölvukubbinn í lyklinum sem er forritaður þannig að bíllinn leyfi þér að starta...
Og svo smærri atriði (kannski engin hátækni en samt sem áður merki um það að framleiðandinn er á undan í hugsun), þá er ég til dæmis að tala um þennan einfalda hlut sem eru pumpur til að halda húddinu opnu, þetta er einhvað sem hinir bílaframleiðendurnir eru fyrst í dag að átta sig á að gæti verið sniðugt.![]()
Og annað sem er í mínum bíl, '93 árgerð, og mér finnst alveg bráðsniðugt. En það er svona "skíðapoki" en hann virkar þannig að þú leggur armpúðann aftur í niður og dregur út þennan "skíðapoka og þannig geta skíðin legið í poka fram í bílinn án þess að skaða innrétinguna![]()
Þetta sá ég í Mótor um daginn í að ég held Peugot sem verið var að reynsluaka, karlinn þar var allavega hrifinn af þessu![]()
Jú jú BMW bilar eins og aðrir bílar, of mikið veit ég ekki. En gesturinn, BMW ekki síður en Mercedes Benz já og Porsche eru svo sannarlega mörgum árum á undan í tækniþróun og hönnun á bílum.
Þetta er það sem Heizzi wrote:En þið verðið átta ykkur á því að BMW er alltaf mörgum árum á undan öðrum bílaframleiðendum í tækniþróun og má þá kannski skýra þessar bilanir af því þeir hafi einfaldlega ekki fullkomnað tækninýjungarnar nógu vel og er þá um einhverjar fínpússningar að ræða.
Bebecar wrote:BMW og Porsche hafa báðir verið mörg ár á undan samtíð sinni og fljótir með nýjungar.
EN það skiptir sosem ekki máli. Ég geri mér alveg grein fyrir því að margir hafa lennt í vandræðum með sína BMW bíla. Ég hef hinsvegar ekki lent í því.
Það stendur líka óhaggað það sem ég sagði með unga ökumenn. Enda segir það sig sjálft að fyrir samskonar upphæðir og japanskir bílar fást á ertu að fá 5-6 árum eldri BMW og auðvitað miklu meira ekinn! Er þá ekki líklegt að komið sé meira viðhald og líklegt að það geti endað með ósköpum ef menn sinna því ekki?
Users browsing this forum: No registered users and 36 guests