Sælir strákar ..
Fyrir stuttu síðan gerði ég þennan þráð
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=16556
Bílinn er auðvitað ennþá bilaður hjá mér .. en ég talaði við tengdó sem er lærður bifreiðavirki og hann þekkir einn sem hefur átt marga E34 .. hann sagði honum frá vandamáli mínu með sjálfskiftinguna og sá aðili sagði að þetta þyrfti ekki endilega að vera SSK sem væri að klikka .. heldur einhvað annað sem fær tölvuna til að seta bílinn í svokallað "fail-safe mode" sem þýðir að annað hvort tekur bílinn bara í 1+2 þrep eða 2+4 þrep (sem er akkurat það sem minn gerir 2+4). Hann sagði að það væri hægt að tengja hjá þessu eða einhvað. Ég er enginn sérfræðingur í svona málum og þess vegna spyr ég ykkur. Eins og fyrri þráður segir þá virkar P,R,N í SSK en þegar sett er í D eða 2,3 eða 4 þá gerir hann þetta.
Getur þetta verið rétt hjá honum ? að einhvað annað bilað eða er talvan bara að stríða ?
ef svo er ? er hægt að tengja framhjá þessu á einhvern furðulegan hátt?
Getur þetta verið öryggi sem er sprungið ?
Hvernig virka þessi failsafe modes í ykkar bílum (ef það hefur komið fyrir) ?
Eins og ég sagði þá er ég enginn sérfræðingur en með réttum leiðbeiningum þá get ég bjargað mér
Endilega commentið