by Tombob » Wed 13. Jan 2010 11:42
Heyriði mig meistarar. Ég er að spá aðeins í tækninni hjá þessum gæja. Hann bremsar sig niður og að því er virðist alveg inn í beygjuna, þar velur hann svo gír og miðað við hljóðið fer oft frekar seint á gjöfina, stundum eins og hann láti hann fara neutral (ekki í bremsu og ekki í gjöf) í gegn um megnið af beygjunni.
Nú hafa nokkrir hérna tekið lexíur frá alvöru kappaksturs mönnum þarna úti og hvað finnst ykkur um þennan stíl?
Ég hef aldrei keyrt á kappakstursbraut og ekki fengið neina tilsögn í hvernig á að keyra þar en ég keyrði í rally í gamladaga og þá var maður alltaf búinn að hæl táa alla gíra niður og kominn af bremsu og á gjöf um leið og maður tók “turn inn í beygju”. Þar var maður reyndar alltaf á möl og mjög laus þegar maður kom að beygju, þannig að allt settup (gír og bremsun) var búið áður en beygja byrjaði og maður fór svo á powerinu í gegn, ef maður hefði farið í bremsun eða neutral þá hefði maður runnið beint útaf.
Þannig að þið sem hafið reynslu og fengið tilsögn hvað finnst ykkur um hvernig þessi gæi keyrir?
Kv,
Tombob