ég er venjulega ansi þolinmóður maður, en það sem var ekki að gera sig þarna var að ég þurfti nánast að toga uppúr mannfíflinu ,sem var þarna að taka á móti fólki, að bjóða mér góðan daginn.
hvað þá að segja mér nokkurn skapaðan hlut, ekki bara "ég kalla í þig" og síðan ekki söguna meir. Ég búinn að bíða í hálftíma eftir einhverju update eða hverju sem er og ég vissi ekki hvort ég þyrfti að bíða þarna í 2 mínútur eða klukkutíma ...
og svo þegar ég labba að afgreiðsluborðinu og segi manni þarna að ég nenni ekki að bíða lengur, þá fæ ég huns númer 2
mistök gerast en fyrirtækis þíns vegna myndi ég halda starfsmannafund og benda afgreiðsluliðinu á að það er ekki svo hræðilegt að vera hress í vinnunni og gera hlutina eins og á að gera þá.
p.s. ég er sjálfur í þjónustustarfi og ég veit alveg að það er ekki auðvelt að vera undir pressu og díla við erfiða kúnna allan daginn, en það á ekki að koma niður á gæðum þjónustunnar. Allra síst í afgreiðslunni, það má segja að hún sé andlit fyrirtækisins. Ef andlitið er kengbeyglað og illa farið þá er manni yfirleitt skítsama hvernig restin er, maður finnur sér bara eitthvað annað.