Þetta er samt algjör snilld....
Fjölmiðlafrumvarp -uppkast Davíðs
http://www.baggalutur.is/bref.php
Heizzi wrote:alveg brilliant, nákvæmlega kjarni málsins
jonthor wrote:hehe þá hefst pólitíkin aftur. Ég held að menn ættu frekar að setja lög um hvað menn mega gera og ekki gera með fyrirtækin sín frekan en hvað þeir meira eiga eða ekki eiga.
jonthor wrote:Já ég er sammála þér að hálfu leyti. En það sem þú nefnir eru 2 hlutir.
1. Misnotkun markaðsráðandi stöðu. Ef fyrirtæki nær á frjálsum markaði svo gríðarlegum ítökum að því tekst að kremja alla aðra samkeppni og á orðið 90% af markaðnum þá eru vandræði uppi. Það skal samt tekið fram að til þess að komast í markaðsráðandi stöðu þarf fyrirtækið að hafa boðið einstaklega gott verð/gæði til neytandans og þess vegna komst það þangað sem það er í dag. Baugur er búinn að gjörbylta íslenkum matvælaiðnaði á þann hátt að við borgum talsvert minna <b>að meðaltali</b> fyrir matvæli okkar. En eins og þú bendir réttilega á þá eykst markaðshlutur þeirra áfram og þeir gætu á endanum farið að misnota stöðu sína meira en þeir gera í dag. Besta dæmið um þetta er ef til vill Microsoft sem á allan markaðinn og getur gert það sem það vill.
Þette kemur hins vegar þessu frumvarpi ekkert við. Þetta kemur samkeppnislögum við og engu öðru.
2. hinn hluturinn eru meiri afskipti ríkis af fjölmiðlum. Ríkið hefur ekkert að gera með það að segja hver má eiga hvað í þessu máli. Í dag á einn einstaklingur stóran hlut fjölmiðla. Davíð er Ósáttur vegna þess að þessum fjölmiðlum var beitt gegn honum að hans sögn. En hvað gerist? Það mikilvægasta sem fjölmiðill á er hlutlaus fréttamennska. Ef fjölmiðlafyrirtæki fer að misnota aðstöðu sína á þennan hátt þá missir hann allt traust og missir þar af leiðandi mátt sinn til að misnota aðstöðu sína.
Lýðræði felur ekki í sér að hið opinbera ákveði hvernig markaðir skulu vera heldur þvert á móti að fólkið ákveði það.
Einhversstaðar hljóta þessir peningar að koma sem þeir hafa úr að spila og það er augljóslega úr vasa neytenda.
Fréttablaðið og Stöð tvö hafa nú þegar misnotað aðstöðu sína og það sést bara mjög vel á Fréttaumfjöllun blaðanna þar sem mun minna er skirfað um Baug en gert er á Mogganum og hjá RÚV.
Það er ekki langt síðan ég sá Auglýsingu frá Nettó í Fréttablaðinu og á næstu síðum á eftir var auglýsing frá Bónus á sömu vörum og á lægra verði. Ég lagði nú bara saman tvo og tvo... Held að Nettó auglýsi ekki í Fréttablaðinu á næstunni
gunnar wrote:dis is gonna get öglý ...
hehe
Users browsing this forum: No registered users and 32 guests