Bjarkih wrote:Zed III wrote:jonthor wrote:Af hverju tjáir fólk sig opinberlega um svona mál ef það hefur ekki lágmarksþekkingu á fjármálum?
http://www.dv.is/frettir/2011/2/23/borg ... r-icesave/
Alveg bráðfyndið comment hjá honum.
að svona menn séu hluti af ákvörðunarvaldinu er vægast sagt dapurlegt.
Bara svona af forvitni þar sem ég nennti ekki að lesa bæði DV fréttina og bloggfærsluna, eruð þið að hneykslast/hljæja að bloggfærsluni eða því sem kemur fram í fréttini? Það kemur nefnilega sorglega oft fyrir að blaðamenn misskilja eða klúðra framsetningu á svona hlutum.
Reyndar fullkomlega sammála því og sérstaklega ef DV á í hlut þá er mjög oft stórkostleg þvæla í gangi og mis-quote, en nei, ég las bloggfærsluna og Björn Valur er svo illa að sér, bæði í þessu máli og í fjármálum almennt að hann kemst að þeirri niðurstöðu að þetta lækki með einhverjum hætti icesave skuldina sem út af stendur samkvæmt áætlunum.
1. Hefur ekki lágmarksskilning skilning á því að virði fyrirtækisins lækkar um jafnvirði arðgreiðslunnar og því nú þegar búið að taka tillit til þessa virðis að fullu í endurheimtum
2. Jafnvel þó 100% endurheimtur næðust upp í Icesave borgum við alltaf vexti af höfuðstólnum
Beint úr greininni:
Reyndar er niðurstaða samninganefndarinnar sú að ef allt gengur eftir sem spáð er muni eignir þrotabús Landsbankans greiða höfuðstól skuldarinnar að fullu og allt að 8 milljarða til viðbótar upp í vexti. Ef þetta reynist rétt borgum við ekki krónu fyrir Icesave. Borgum ekki leiðin er því samningaleiðin eins og hún liggur fyrir í dag.




