Könnun varðandi merki

Hér skal spjalla um BMW.

Nýja eða gamla merkið?

Nýja
22
42%
Gamla
31
58%
 
Total votes : 53

Postby IceDev » Thu 09. Dec 2004 21:17

Kommon


Að hafa M litina er töff


Þegar að maður er að promota klúbb þá vill maður hafa eitthvað catchy

Samlíking:

Ekki fer maður að taka myndir af breiðholtinu þegar að maður vill promota ísland...er það nokkuð?
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Heizzi » Thu 09. Dec 2004 21:35

IceDev wrote:Kommon

Samlíking:

Ekki fer maður að taka myndir af breiðholtinu þegar að maður vill promota ísland...er það nokkuð?


Skemmtilega góður punktur :lol:
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby Haffi » Thu 09. Dec 2004 21:46

shut
the
fuck
up
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Einsii » Thu 09. Dec 2004 21:55

IceDev wrote:Einsii með flottasta merkið so far, mætti snyrta það örlítið en annars er það fallegt!



Þumlar upp, einsii!


já ég á eftir að fá konuna til að fótósjoppa það.. króm texture og stöff ;) en þetta var bara gert á nokkrum mín í paint til að koma inn smá hugmyndum í umræðuna

Haffi wrote:og það eru hvað margir ///M bílar í klúbbnum?

ég er orðinn kátur með gamla.


þetta er ekki ///M þetta er ///K (Kraftur) stal bara sma úr M logoinu :P og það gefur líka hugmynd um hvernig klúbbur þetta er.. vissiru að íslandsbanka logoið er hannað af útlenskum gaur sem tók fullt af pening fyrir að stela logoi af ítölskum harðfisk og selja þeim ;)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby arnib » Thu 09. Dec 2004 22:03

Eruð þið alveg búnir að tapa ykkur hérna..

Málið er mjög einfalt,
við getum ekki tekið eitthvað lógó sem er þegar í notkun annarsstaðar
og er í eigu einhvers fyrirtækis og notað það sem okkar eigið.

Það er ástæðan til að byrja með á því að við tókum út "gamla lógó"-ið okkar, sem var nú ekki beint lógó heldur merki sem var búið til
í stað þess að hafa ekkert merki.

Það að taka ///M og breyta í ///K finnst mér óviðeigandi bæði vegna þess að ///M er án efa skráð vörumerki, en líka eins og margir hafa bent á hérna að fæstir bílarnir í klúbbnum eru M bílar.

Það hafa nokkrar ágætar hugmyndir komið finnst mér, Ísland, Nýrun og fleira til, en það hafa ekki mörg nothæf lógó komið útúr þeim.
Lógóið sem er núna uppí horni hjá okkur uppfyllir best þau skilyrði sem hafa verið sett hingað til,
þ.e.
1) Það er ekki BMW / M Merki né annað skrásett vörumerki
2) Það notast ekki við mynd sem einhver annar á höfundarétt að.
3) Það er einfalt, og því hægt að prenta það á boli/húfur eða hvað sem við viljum í framtíðinni.
4) Það representar vel það sem klúbburinn er, þ.e. "BMW" og "Ísland".

Að sjálfsögðu ef einhver telur sig geta gert betur, gerir betur og sýnir okkur það þá mun það vera skoðað, en það er augljóst mál að það er erfitt að hanna góð lógó, enda sýnir það sig best þegar photoshop snillingur eins og bjahja treystir sér varla í verkið.

Þannig að,
látið verkin tala ef þig hafið áhuga.

Einnig fannst mér góður punktur hjá bebecar hérna í einhverjum þræðinum, að það er með þetta eins og flest annað,
það verður aldrei fundið logo sem allir fíla.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Svezel » Thu 09. Dec 2004 23:02

Image

Var eitthvað aðeins að leika mér í PS á milli próflesturs og datt í hug að pósta því.

já ég er að missi vitið :roll:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Nökkvi » Thu 09. Dec 2004 23:46

Talandi um Íslandsbanka:
Einsii wrote:.. vissiru að íslandsbanka logoið er hannað af útlenskum gaur sem tók fullt af pening fyrir að stela logoi af ítölskum harðfisk og selja þeim ;)

Þetta er kaffihús í Vín
Image

En í alvöru talað er ég mjög ánægður með Íslands logoið í horninu. Þetta er fínt svona en ef menn geta gert betur er sjálfsagt mál að endurskoða það.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Postby bjahja » Fri 10. Dec 2004 01:15

Svona fyrst að menn eru að pósta hugmyndum......

Image

Þetta er hugmyndin sem ég var að vinna við
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby O.Johnson » Fri 10. Dec 2004 01:44

Þetta nýja logo er töff en samt er eins og eitthvað vanti. Það er hálpartirnn tómt á sjá. Ákvað aðeins að breita því og fór að fikta með letur gerðir og þetta er afraksturinn.
Arial Black
Image

Copperplate Gothic Bold
Image

Eras Bold ITC
Image

Forte
Image

Gill Sans Ultra Bold
Image

Rockwell Extra Bold
Image
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby jonthor » Fri 10. Dec 2004 07:51

Já þetta er það sama og ég gerði í gær og sendi á gunna, það er líka mjög töff að hafa kraftur stafina fyrir neðan, þ.e. í bláa hlutanum hægra megin.

Eða, BMW í Norðvesturkjördæmi og Kraftur í Suðaustur :D
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Fri 10. Dec 2004 09:06

Má eitthvað hafa BMWkraftur sem texta
þar sem að BMW er skráð merki??

veit að DTMpower sem áður hét BMWpower þurftu að breyta sínu nafni þegar BMW NA hóttaði að kæra þá, eða hvort að það hafi verið BMWMpower
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Kristjan » Fri 10. Dec 2004 09:30

Eruði vissir um að það sé leyfilegt að nota BMW litina í merki sem líkist BMW logoinu (Og á að líkjast því) ?

Mér lýst vel á hugmyndina hans bjahja.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby gstuning » Fri 10. Dec 2004 10:10

Kristjan wrote:Eruði vissir um að það sé leyfilegt að nota BMW litina í merki sem líkist BMW logoinu (Og á að líkjast því) ?

Mér lýst vel á hugmyndina hans bjahja.


Ég held að litirnir og litasamsetningin sé ekki skráð sem vörumerki því að allir BMW klúbbar eru með litina í merkjum sínum og meira að segja í BMW merkinu sjálfu

Ég held að þetta sé komið á það stig að annaðhvort verðum við hinn official BMW klúbbur á íslandi og færum í BMW klúbbi Evrópu þar af leiðandi eða við höldum okkur hérna heima og erum svona un-official BMW klúbbur íslands

Image

Image

Linkur á reglur varðandi notkuns logos
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby iar » Fri 10. Dec 2004 10:39

Svezel wrote:Var eitthvað aðeins að leika mér í PS á milli próflesturs og datt í hug að pósta því.

já ég er að missi vitið :roll:


Kannski er það perrinn í mér en mér finnst punktarnir hálf dónalegir. ;-)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Svezel » Fri 10. Dec 2004 11:09

iar wrote:
Svezel wrote:Var eitthvað aðeins að leika mér í PS á milli próflesturs og datt í hug að pósta því.

já ég er að missi vitið :roll:


Kannski er það perrinn í mér en mér finnst punktarnir hálf dónalegir. ;-)


Ég held að það sé perrinn í þér bara. Nördið í mér sér annað í þessu :wink:

p.s. þessari hugmynd er stolið annars staðar frá ef menn er farnir að halda að ég sé eitthvað sniðugur.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests