Sælir
Var að koma af uppboði hjá vöku og þar var M5 '91 sem að fór á 260 þús.!!!!!!!
Var einhver annar en ég þarna?
Bíllinn var alveg heill, vantaði afturstuðara á hann, svartur, leður, lúga og þetta venjulega, hann var á þremur svona fimm arma AC-Schnitzer (hvernig sem að það er skrifað) og einni öðruvísi. Reyndar kom ekki fram hversu mikið hann var keyrður, en alveg snyrtilegur bíll þannig séð, sá lítið á sætum en þyrfti mössun og bón!
Veit einhver hvaða bíll þetta er?
Er þetta ekki RUGL verð? eða er hann kannski e-ð bilaður, djöfull sé ég eftir að hafa ekki tekið hann!!


