Kagginn er dökkgrænn... getur skoðað hann ef þú átt leið framhjá litlu bílasölunni uppá höfða. Hann er á bílaplaninu mitt á milli hennar og trésmíðaverkstæðisins Sökkuls.
Nei, veit það ekki. Vissi að það þurfti "bara" einhvern einn hlut til að fá hann í gang ... en enginn veit hvað það er
Allaveganna... við dömpum honum í höfnina eða eitthvað 24. mars þannig að þeir sem hafa einhvern áhuga hafa frest þangað til. Annars þá komum við að honum þannig um daginn að það var einhver búinn að hjálpa sér sjálfum að nokkrum varahlutum ... helvítis pakk
Jamm, var meira að segja hálfgerður gullmoli þar til honum var lagt... þá ryðguðu húddhjarirnar fastar og einhver reyndi að loka húddinu þannig að það beyglaðist þarna fyrir miðju. Svo var einhver sem hefur verið að leika sér að því að skemma hann (krakkahelvíti).
Honum var lagt fyrri hluta árs '00 og var aldrei gangsettur eftir það því það þurfti að redda þessum hlut í hann. Eigandinn flutti út og bíllinn bara gleymdist. Skilst á foreldrum eigandans að strákurinn hafi þó alltaf hugsað vel um þennan bíl. Ástæðan fyrir því að hann drabbaðist niður var að það átti að selja einhverjum gaur bílinn en gaurinn hætti síðan við eftir að strákurinn var fluttur út.