Ég myndi halda að hann væri að sjúga falskt loft en ég er ekki nógu fróður til að segja til um það. Hvernig er annars best að ganga úr skugga um hvaða hosa er ekki nægilega þétt og hvar? Ég heyrði einhverntíman talað um að spreyja contact spray'i yfir hosurnar og athuga svo hvort gangurinn í bílnum breyttist og þannig gæti maður fundið út staðsetninguna. Ef það er besta leiðin... hvaða contact spray á ég að nota og hvar fæst það? Ég var að leita að contact spray'i um daginn og það virtist ekki fást á neinum bensínstöðvum.
Takk





