Kombo wrote:
þetta var nú reyndar þegar ég var nýkominn með prófið en það afsakar ekki neitt en reyndar kann ég ekki að skammast mín í umferðinni ég er búin að gera allt sem hægt er að gera á bíl 220kmh er ekki það hraðast sem ég hef keyrt ég það er reyndar 235kmh á krísuvíkurveginum
Ertu ennþá MEÐ bílpróf??? Að mínu mati ætti þú ekki að hafa það, það er óhuggulegt að lesa þetta frá þér og það eina sem maður hugsar er hvort þú drepir einhvern annan áður en þú drepur sjálfan þig
Þú verðu að vaxa uppúr þessu fljótlega annars endar þetta ílla. Ég veit um nokkur dæmi þar sem menn keyrðu sig fljótlega til óbóta eða dauða og aðstandendur jafna sig aldrei á því.
Ekki taka þessu ílla, en hugsaðu aðeins um hvað þú ert að gera. Þó þú haldir annað þá hefur þú enga stjórn á aðstæðum á þessum hraða í miðri Reykjavík eða innan um aðra umferð.
Sportið snýst ekki eingöngu um hraða... við höfum flestir hér keyrt mjög hratt en veljum hinsvegar stað og stund til þess og stofnum engum öðrum í hættu með því athæfi.
Svona gerir maður ekki með fólk í bílnum hjá sér og alls ekki INNANBÆJAR!
Þannig að reyndu nú að hafa hemil á þér og fá útrás á skynsmalegum stöðum

en ég var ekki með neina farþega og myndi aldrei aka yfir löglegum hraða með farþega í en já ég er enn með prófið en hef misst það einu sinni