
Leikmaður wrote:En er ekki síðan alltaf leyfilegt að hafa kastarana á, þegar maður er kominn út fyrir borgarmörkin?

iar wrote:Jú jú, auðvitað má það eins og að keyra með háu ljósin, á vinstri akreininni og á þriðja hundraðinu.
Leikmaður wrote:...Það er reyndar ekki alltaf ólöglegt!

Nökkvi wrote:Leikmaður wrote:...Það er reyndar ekki alltaf ólöglegt!
Já ég átta mig nú á því, sorry, smá hugsunarfeill![]()
Það má nota þokuljós í þoku að sjálfsögðu en ég heyrði einhverntíman að það mætti aldrei nota aukaljós innan borgar/bæjarmarka hvernig sem veðrið væri. Það mætti aðeins nota þau við vissar aðstæður úti á þjóðvegi.
32. gr. [Við akstur vélknúins ökutækis skulu lögboðin ljós eða önnur viðurkennd ökuljós jafnan vera tendruð.]1)
[Við akstur ökutækis í rökkri, myrkri eða ljósaskiptum og þegar birta er vegna veðurs eða af öðrum ástæðum ófullnægjandi, hvort heldur er til að ökumaður sjái nægilega vel fram á veginn eða til að aðrir vegfarendur sjái ökutækið, skulu lögboðin ljós vera tendruð. Ökutæki, sem eigi skal búið ljósum, skal þá auðkennt samkvæmt reglum2) sem [ráðherra]3) setur.]1)
Nota skal háan ljósgeisla þegar sjónsvið ökumanns nægir annars ekki til að aka örugglega miðað við ökuhraða.
Háan ljósgeisla má eigi nota:
a. þegar ekið er um nægilega vel lýstan veg,
b. þegar ekið er á móti öðru ökutæki, þannig að valdið geti ökumanni þess glýju, eða
c. þegar ekið er svo skammt á eftir öðru ökutæki, að valdið geti ökumanni þess óþægindum.
Nota skal lágan ljósgeisla, þegar ekki er skylt eða heimilt að nota háan ljósgeisla.
[Í þoku, þéttri úrkomu eða skafrenningi má nota þokuljós í stað eða ásamt lágum ljósgeisla. Hjálparljós má eigi nota til annars en þau eru ætluð.]1)
Ljós má eigi nota þannig að valdið geti öðrum vegfarendum glýju.
Eigi má nota annan ljósabúnað eða glitmerki en boðið er eða heimilað í lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim.
Bjarki wrote:Það má vera með parkljós og þokuljós á daginn. Í umferðarlögum stendur að aðalljós megi vera í ákveðinni hæð og stærð á daginn þ.e. ekki myrkri. Nenni ekki að finna þetta í lögunum en gerði það einu sinni og fór út og mældi og það passaði allt. Kastararnir eru í stærð og hæð sem passar innan ákvæða laganna.

Svezel wrote:Þegar maður er með xenon þá þarf engin hnakkaljós 8) (ég reyndar kveiki á þeim fyrir myndatökur og svona)
freysi wrote:Getið þið útskyrt afhverju kastararir eru bannaðir en ekki Xenon sem getur svoleiðis gert manni lífið leitt ef maður keyrir á móti þessu í mikillri dimmu?
Users browsing this forum: No registered users and 31 guests