Auto, Motor und Sport, Heft 21 2004

Hér skal spjalla um BMW.

Postby E 220T » Tue 26. Oct 2004 09:49

arnib wrote:
Lastu ekki greinina? :)

Og síðast en ekki síst vinnur hann af því að hann er BMW! (kannski pínulítið hlutdrægt) 8)


Nei, ég las ekki greinina, bara statistikina, en af þessum 27 stiga mun skýrast 23 stig af minni mengun og lægra verði. Síðan skorar BMW-inn 6 stigum meira fyrir öryggi.

Þ.a. útfrá þessari statistik má færa rök fyrir því að Benzinn sé betri sé ekki horft til verðs, mengunar og öryggis :wink:

Allt atriði sem skipta gaura eins og okkur væntanlega engu máli þegar við förum að skoða svona bíla notaða þegar verðið er orðið viðráðanlegt eftir einhver x ár.

En svona getur nú verið gaman að statistikinni, menn geta oft lesið útúr henni þá niðurstöðu sem þeir vilja sjálfir fá :naughty:
E 220T
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 33
Joined: Wed 18. Feb 2004 22:33

Postby Svezel » Tue 26. Oct 2004 11:03

Flott grein hjá þér Nökkvi, myndi taka mig ansi langan tíma að klóra mig í gegnum þetta á skólaþýskunni :lol:

En djöfull lýst mer vel á .35d, magnaður rokkur :shock:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Nökkvi » Tue 26. Oct 2004 20:36

Fyrst menn eru farnir að ræða um BMW vs. Mercedes er rétt að eitt komi fram. Það er þónokkur rígur á milli Bundeslanda í Þýskalandi og þar sem Stuttgart er stærsta borgin í Baden-Würtenberg og München er stærsta borgin í Bayern er mikill rígur á milli BMW og Mercedes. Skrifstofur Auto, Motor und Sport eru í Stuttgart. Fyrir þá sem ekki vita eru höfuðstöðvar Mercedes einmitt í Stuttgart. Þetta sést best á því að BMW eru ótrúlega vinsælir í München og Mercedes í Stuttgart.

Þótt Auto, Motor und Sport sé stórt blað finnst mér ég stundum aðeins finna fyrir þessum ríg, t.d. þegar Z4 koltapaði í samhliðaprófun með nýja Mercedes SLK og þegar M3 Cabrio koltapaði á móti CLK AMG Cabrio og Audi S4 Cabrio. M3 bíllinn tapaði á of stífri fjöðrun. Er það ekki einmitt það sem verið er að leita að í bíl eins og M3?

En alla vega, þegar BMW vinnur Mercedes í prófunum í Auto, Motor und Sport þá held ég að það sé alveg verðskuldað. En í þessu tilfelli er vissulega mjótt á mununum og þegar kostnaði og mengun er sleppt úr dæminu vinnur BMW-inn með mjög litlum mun, sem sagt ekki marktækur munur. Þegar öllu er á botninn hvolft þá velur maður sér bara bíl sem manni líst betur á.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests