Þessi samkoma tókst bara með ágætum og mættu þó nokkrar BMW hnetur, eða um 16 stykki. Að sjálfsögðu mæta fleiri næst.
Horft var á myndbönd með öðru auganu og reynt að halda sambandi við þann sem maður var að spjalla við með hinu. Ég skemmti mér hið besta og man nú miklu betur nöfnin á bakvið "nikkin". Þetta var alveg nauðsynlegt til að "aftölvunördast" smávegis, sjá andlitin á bakvið "nikkin".
Gunni Lorenz á miklar þakkir skildar fyrir að koma þessu í kring og standa í öllu snattinu kringum þetta.
Þökkum Sveinbirni (alpina) svo kærlega fyrir að koma með spóluna, hún vakti mikla lukku.
Og náttúrulega öllum sem mættu fyrir að taka þátt. Sjáumst úti í góða veðrinu í sumar
Sæmi


