Quote:
Þeir segja reyndar í verðlistanum að 120d kosti 2.950.000
Það eru samt ekki komin verðin á aukahlutapakkana, en eins og t.d. í bretlandi eru þeir 2 eða 3 og kosta slatta í viðbót

Ég settist inn í svona ás um helgina og fannst hann bara þokkalegur.... alveg þangað til ég sá að hann var með aukahluti upp á 15.000 evrur
Annars er fín grein í októberhefti EVO sem er dálítið í takt við þær pælingar sem eru oft á spjallborðinu hérna. Í greininni eru tekin fimm dæmi um eldri BMW bíla sem hægt væri að fá fyrir minna en verðið á nýjum 120d og eiga að auki eitthvað klink eftir til að standa undir hærri rekstrarkostnaði sem fylgir eldri bílunum. Bílarnir eru E30 M3 Evo, E36 M3 Evo, 840 Ci Sport, Alpina B10 V8 '97 og M Coupe
Það er svo náttúrulega spurning hvort fólk sem er að fara að kaupa sér 120d myndi virkilega spá í þessum gömlu
Niðurstaða EVO hefði allavega kætt Svezel.