Sælir félagar.
Ætlaði bara svona rétt að segja frá samkomu sem ég kíkti á í Köln þegar ég var úti í Febrúar 2003.
Ég var búinnn að vera í sambandi við hana Gertie, sem er formaður bmwe23.de (
http://www.bmwe23.de ) klúbbsins þarna úti í þýskalandi. Þetta er klúbbur fyrir gömlu sjö línuna (E-23) frá 1977-1987.
Nú skemmst er að segja frá því að hún bauð mér að koma og kíkja á þau, en það var búið að skella á samkomu á þeim tíma sem ég var úti í Belgíu. Það passaði mjög vel fyrir mig að kíkja á þetta og ég keyrði upp eftir til Kölnar á 745i bílnum sem ég keypti úti, þannig að ég var á réttum bíl og allt!
Þetta var nú bara svona svipað eins og hefur verið hjá okkur, allir bara að hittast og spjalla. Það var ekkert spes þema hjá þeim á þessum fundi, þetta var bara svona inn-á-milli fundur. En þau fara líka í spes ferðir, t.d. Hockenheim og Nurburgring á sumrin.
Ég talaði þarna þýsku 60% og ensku 40% og það sauð alveg á heilanum á mér þegar ég fór heim um kvöldið, þar sem ég er enginn þýskusnillingur. Þetta byrjaði klukkan 13:00 og ég var þarna allan tíman þangað til um 21:00. En að sjálfsögðu voru ekki allir allan tíman.
Á þessum fundi sá maður síðasta eintakið af E23 "Highline" bílnum sem var framleiddur, mjög flottur. Svo var líka þarna 320i bíll sem er í Mars útgáfu "Total BMW" tímaritsins, allgjör gullmoli.
Þetta var mjög gaman og ég ætla örugglega að kíkja aftur á svona fund í sumar, þegar maður getur verið meira úti að skoða bílana! Það var svo assgoti kalt þarna úti, svipað eins og niðrá höfn hjá okkur í haust.
Jæja, nóg í bili.
Sæmi