by gstuning » Tue 14. Sep 2004 13:24
Ég myndi nú vilja segja ykkur frá því ef einhver kæmi hérna að selja BMW eða eitthvað annað og ég vissi sögu bílsins ef hún væri slæm
ÉG myndi ekki vilja að kunningjar mínir hérna verði fyrir því að kaupa bíl sem lookar og fílast fínt en er í raun eitthvað annað en seljandi segir,
Þetta er opið spjallborð og menn verða einnig að geta tekið því ef einhver kemur og segir eitthvað slæmt um vöruna,
sama og að standa á bílasölu að skoða bíl og einhver félagi manns stendur við hliðina á manni og segir manni að þessi bíll sé slæmur, hvað á bílasalinn að vísa félaganum út og tala einn við mann svo að hann komist upp með að selja manni mögulega slæmann bíl
Mín hugmynd væri bara að í söluþráðum sé bara rætt um vöruna og að mögulegir kaupendur spyrji spurninga og seljandi svari,, thats it, sleppa öllu spjalli um frændur sína og eitthvað bull,,
Reyna að hafa þetta soldið fagmannlegt
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
