Ég reyndi að hringja í þig sem óður væri, en það var alltaf slökkt á símanum hja þér, þú hefur sennilega verið að fljúga.
Svo ætlaði ég að fara að ná í hann þá var einhver helvítis bjáninn búinn að rífa heddið af vélinni, ég vona að það hafi ekki verið þú!!!
Djö... Nei, nei, allt í lagi, ég ætlaði líka að gefa þér hann, ég vona að þú hafir hirt meira, sjálfskiptingin var nýlega upptekin og drifið var gott (úr 732) ég á svo eitthvað smá drasl í kassa heima, þú getur komið við og hirt það, ég man ekki hvort það var eitthvað merkilegt.
Ég sá ekkert meira sem ég tímdi að kaupa af þeim. Þeir vildu fá einhver 40.000.- kall fyrir bílinn minnir mig og mér fannst það ekki þess virði og hafði heldur ekki tíma fyrir hann þá. Svo ég bara greip hjartað úr honum.
Eru þessi bretti sem þú ert með original eða aftermarket?
Nei nei, ég átti aldrei þennan bíl. Ég var búinn að falast eftir honum, en Hlynur vildi ekki láta hann þá. Annars var bíllinn orðin frekar slæmur, mikið ryð og innréttingin ekkert spes.
Hugmyndin mín var að taka úr honum vélina og skiptingu og setja í annan ryðlausan bíl. En það varð nú ekki.
Svo í stað þess að horfa á eftir öllu draslinu í pressuna eða eitthvað út í buskan greip ég það helsta í varahluti eða til uppbyggingar.
En það er alltaf sorglegt þegar svona bílar týna tölunni.