Official kvörtun

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Official kvörtun

Postby force` » Sat 07. Aug 2004 01:18

Mér finnst bara fáránlegt að vera að læsa þræði ef manneskjan hefur auglýst áður. Ekki nema það sé "ein auglýsing per notanda" policy í gangi. Þarna inní bmw til sölu var einhverjum þræði læst því að hann hafði auglýst bílinn mánuði fyrr. OG HVAÐ ?
Er það hættulegt ?
Persónulega þá finnst mér alveg hrottalega leiðinlegt að vera að lesa eldgamlar auglýsingar sem ekkert stendur í nema *bömp* *ttt* og þannig vesen.
Og hvað er eiginlega málið?
Þetta skil ég bara alls ekki, hefði skilið það ef það væri bara einhverjir dagar á milli, en síðasta SVAR á hinum þræðinum er síðan 6 júlí.
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður
User avatar
force`
Getawaybílstjóri
 
Posts: 721
Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37

Re: Official kvörtun

Postby iar » Sat 07. Aug 2004 11:34

force` wrote:Mér finnst bara fáránlegt að vera að læsa þræði ef manneskjan hefur auglýst áður. Ekki nema það sé "ein auglýsing per notanda" policy í gangi. Þarna inní bmw til sölu var einhverjum þræði læst því að hann hafði auglýst bílinn mánuði fyrr. OG HVAÐ ?
Er það hættulegt ?
Persónulega þá finnst mér alveg hrottalega leiðinlegt að vera að lesa eldgamlar auglýsingar sem ekkert stendur í nema *bömp* *ttt* og þannig vesen.
Og hvað er eiginlega málið?
Þetta skil ég bara alls ekki, hefði skilið það ef það væri bara einhverjir dagar á milli, en síðasta SVAR á hinum þræðinum er síðan 6 júlí.


Reyndar hefur einmitt verið sú "policy" í gangi að það sé ekki endalaust verið að auglýsa sama hlutinn aftur heldur er frekar leyft að bæta við auglýsingaþræði til að "bömpa" auglýsingum upp, koma með nýjar upplýsingar osfrv.

Gallinn við þetta er auðvitað eins og margir hafa tekið eftir að auglýsingar geta farið út í alveg ótrúlegt bull og vitleysu þar sem hver sem er getur póstað inn í þær.

En í dag er þetta semsagt svona. :-)

PS: Bara til að benda á aðra möguleika þá er það t.d. þannig á kvartmíluspjallinu að ekki er hægt að svara auglýsingapóstum og auglýsingum eldri en X vikna gömlum er hent sjálfkrafa. Þetta krefst þess auðvitað að fólk geri almennilegar auglýsingar með góðum kontactupplýsingum en á móti hverfur kjaftagangur ("kerlingaþvaður" :lol: ) og annað bull alveg. Ef fólk þarf nauðsynlega að tjá sig opinberlega um einhverja auglýsingu getur það bara gert það í öðrum offtopic þráðum.

Þetta finnst mér persónulega mjög sniðugt kerfi þar sem óþarfa bull í auglýsingum angrar mig mikið. Ef ég væri að auglýsa bílinn minn til sölu og allt í einu færi umræðan að snúast um öll tjónin sem allt annar en samskonar bíll hafi lent í. Þetta væri ekki mikið að hjálpa mér að selja minn.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby force` » Sat 07. Aug 2004 13:38

Já bull er alveg óþarfi í auglýsingum,
en það gerist oft óvart..........

Samt eru ákveðnir einstaklingar á flestum spjöllum sem að er alveg sama hvernig auglýsingar fara og geta ekki haldið fingrunum að sér í flestum tilvikum.

En þetta með þessa auglýsingu þarna sem ég er að tala um, fannst mér alger óþarfi, og svo fann ég bara svona "stæla" vibes frá þessu replyi frá oskard, og sé enga ástæðu fyrir því. Það er alveg rétt, það er óþarfi að auglýsa sama hlutinn hundraðogsjötíusinnum, en ef að fólk er að gera nýja auglýsingu, afhverju er GAMLA þræðinum ekki bara hent og nýja leyft að vera ef það má alls ekki vera með 2 auglýsingar um það sama í gangi þá það séu 32 dagar á milli þeirra .. ?

Þetta er bara almenn forvitni,
sérlega því að mér hefur alltaf allt hafa gengið hérna á almennri kurteisi og verð bara að segja það að mér líkar mun betur við mig hérna núna en þegar ég kom og ætlaði að vera með fyrst.
(enda þeir sem að gerðu ekki annað en að vera með leiðindi eru ekki hérna lengur nema þeir hafi skipt um notendanafn ;) )
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður
User avatar
force`
Getawaybílstjóri
 
Posts: 721
Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 19 guests